L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
04.01.2010 19:01
|
Sf. Gutt
Kemur Maxi Rodriguez til Liverpool?
Argentínumaðurinn Maxi Rodriguez er sagður þessa dagana í viðræðum við forráðamenn Liverpool. Hann leikur núna með Atletico Madrid og gæti komið sem lánsmaður ef eitthvað í hæft í þessum fréttum.
Rafael Benítez er sagður hafa hug á að fá argentínska kantmanninn að láni til vors ef samkomulag næðist við spænska liðið. Maxi hefur ekki átt fast sæti í liði Atletico á þessu keppnistímabili og hafa fregnir um hugsanlega komu hans til Liverpool verið mikið í fjölmiðlum síðustu daga.
Það er ekki venjan að fjalla mikið um svona sögusagnir á Liverpool.is en í dag var sagt af viðræðum Liverpool og Atletico Madrid í staðarblaðinu Echo og því er væntanlega eitthvað í gangi. Fréttir dagsins hermdu að Maxi væri tilbúinn að lækka laun sín til að greiða fyrir því að komast til Liverpool.
Komi Maxi til Liverpool þá hefur hann það í reynslubankanum að skora á Anfield. Hann skoraði mark Altetico á síðustu leiktíð þegar liðin gerðu 1:1 jafntefli í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir