Hverjir gætu komið? Hluti III
Margir leikmenn liðsins hafa fengið lítið hlutverk á tímabilinu eða nýtt tækifærin sín illa og er ekki ólíklegt að Benítez muni reyna að selja þá leikmenn til að fá meiri pening í hendurnar. Meðal þeirra leikmanna sem gjarnan eru taldir vera á sölulista Liverpool eru Andriy Voronin, Ryan Babel, Andrea Dossena, Philipp Degen og hafa heyrst orðrómar um að Javier Mascherano og Albert Riera vilji burt frá félaginu en ekkert hefur fengið staðfest í þeim málum.
Eins og í upphafi undanfarinna félagsskiptaglugga þá mun koma smá samantekt af þeim nöfnum sem orðaðir hafa verið við félagið síðustu vikurnar og þeir leikmenn sem hugsanlega gætu gengið í raðir Rauða hersins á nýju ári. Þetta er fyrsti hlutinn.
Það eru kanski ekki margir sem þekkja til Erik Huseklepp en hann er samherji Birkis Sverrissonar, Ólafs Bjarnasonar og Kristjáns Sigurðssonar í norska liðinu Brann.Erik getur leikið sem framherji og kantmaður. Hann er ekki sá áhrifamesti í framlínunni og hefur hann í gegnum tíðina ekki skorað mikið af mörkum sem framherji en hann nýtist mjög vel á hægri kantinum og líklega yrði hann hugsaður þar færi hann til Liverpool. Hann er mjög fljótur, hefur tæknina til að leika á varnarmenn og koma boltanum fyrir markið.
Vegna fjárhagsörðugleika Brann gæti félagið verið tilbúið að hlusta á tilboð upp á tvær milljónir punda í leikmanninn og þar sem að fjármagn Liverpool til leikmannakaupa er takmarkað þá gæti hann ágætis kaup fyrir lítinn pening. Hann hefur skorað fimmtán mörk í 67 leikjum fyrir Brann, á síðustu leiktíð skoraði hann fimmtán mörk og lagði upp tíu í þrjátíu leikjum og átti stóran þátt í því að gera Brann að Noregsmeisturum. Hann á að baki sjö landsleiki fyrir norska landsliðið og eitt mark.
Mörg lið eru sögð á höttunum eftir honum en meðal þeirra eru Liverpool og Chelsea.

Elia kemur úr unglingaliði ADO Den Haag og fluttist síðar til Ajax þar sem hann var lánaður aftur um tíma til ADO Den Haag. Á tæplega þremur árum lék Elia 59 leiki með ADO Den Haag og skoraði sex mörk, hann var síðan seldur til Twente árið 2007.
Hjá Twente spilaði hann 64 leiki og skoraði ellefu mörk. Hann fór að vekja athygli með spilamennsku sinni og á síðustu leiktíð var hann valinn mesta efnið í hollensku deildinni, fljótlega eftir það gekk hann í raðir HSV og skrifaði undir fimm ára samning við þá þýsku.
Hann hefur heldur betur slegið í gegn í Þýskalandi á þessu hálfa tímabili sem hann hefur spilað þar. Í þeim sextán leikjum sem hann hefur spilað er hann búinn að skora fimm mörk, búinn að leggja upp flest mörk í deildinni og þykir einn af öflugustu leikmönnum deildarinnar.
Frammistaða hans í Þýskalandi er sögð hafa vakið athygli Liverpool sem hefur áhuga á að fá leikmanninn í sínar raðir og er talið að Rafael Benítez gæti boðið þeim þýsku að fá Ryan Babel, samlanda hans, í skiptum. Elia er alls ekki ósvipaður leikmaður og Babel en hann býr yfir miklum hraða, tækni og áræðni. Vegna góðs gengis hans hjá HSV þykir ólíklegt að hann verði seldur nema fyrir háa upphæð.
Ferill hans hélt uppteknum hætti í Þýskalandi en þar lék hann 74 leiki fyrir HSV og var til að mynda valinn besti leikmaður deildarinnar á sínu fyrsta tímabili sínu hjá liðinu einnig sem hann varð fljótlega gerður að fyrirliða, hann spilaði mikið sóknarhlutverk hjá liðinu og skoraði hann á þessum tíma hátt í þrjátíu mörk.
Þar á eftir gekk hann til liðs við Real Madrid og byrjaði ferill hans þar vel en hann skoraði til að mynda þrennu í stórsigri Real Madrid á Sporting Gijon. En þegar leið á tímabilið fækkaði tækifærum hans í liðinu og virtist hann ekki vera inn í framtíðarplönum þáverandi knattspyrnustjóra Madrídinga, Juande Ramos. Staða Rafael undir stjórn Manuelle Pellegrini, núverandi knattspyrnustjóra Real Madríd, er ótrygg og virðist hann ekki vera í náðinni.
Mörg lið eru sögð fylgjast með gangi mála hans hjá Real Madrid og meðal þeirra sem hafa í gegnum tíðina verið orðuð við hann eru Liverpool, Chelsea, Arsenal og Manchester United svo einhver séu nefnd. Orðrómur hafa heyrst um að Liverpool gæti reynt að fá hann að láni út leiktíðina en líklegast þykir að Real Madrid vilji aðeins gera endanleg félagsskipti.
Rafael er leikinn, sterkur, útsjónarsamur leikmaður sem býr yfir góðri skot- og sendingatækni. Hann getur leikið á miðri miðjunni, sem sóknartengiliður og á vinstri kantinum svo hann gæti komið með mikla breidd og gæði inn í hvaða lið sem er og gæti reynst frábær kaup fyrir Liverpool.
Hér er á ferðinni ein af stjörnum Evrópumótsins sumarið 2008 þar sem að hann fór á kostum með tyrkneska landsliðinu og átti hann stóran þátt í velgengni Tyrkjanna en hann skoraði tvö mörk á mótinu, þá var hann aðeins 21 árs gamall. Þá vakti hann gífurlega athygli stærri liða í Evrópu en hann varð um kyrrt hjá uppeldisfélagi sínu Galatasaray.Þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gamall þá var hann valinn fyrirliði liðsins fyrir núverandi tímabil. Arda á að baki sér 136 leiki og 35 mörk fyrir Galatasaray og 34 landsleiki fyrir Tyrki þar sem hann hefur skorað fimm mörk.
Arda segist hafa hafnað stórum tilboðum frá stórum liðum víðsvegar í Evrópu og jafnframt að hans drauma áfangastaður þegar hann yfirgefur Galatasaray sé Liverpool. Rafael Benítez er sagður hafa Arda ofarlega á óskalista sínum og muni reyna að fá pening til að lokka hann til Liverpool, kaupverðið á honum er talið vera tíu til tólf milljónir punda sem er alls ekki mikið fyrir þennan efnilega leikmann.
Hann getur leikið á báðum köntunum og sem sóknarsinnaður miðjumaður. Hann er þekktastur fyrir tækni sína, hraða og góð hlaup sem og hæfileika sína þegar kemur að stoðsendingum og markaskorun. Arda er frábær leikmaður sem gæti heldur betur lífgað upp á sóknarleik Liverpool sem hefur ekki veitt af smá lífi á leiktíðinni.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

