| Grétar Magnússon
Javier Mascherano hrósar Fernando Torres í hástert eftir leikinn gegn Wigan en þar komst Torres á blað yfir markaskorara á ný. Mascherano telur að Spánverjinn muni skjóta Liverpool ofar í stigatöflunni.
Markið sem Torres skoraði reyndist mikilvægt því Wigan náðu að klóra í bakkann undir lok leiksins og urðu lokatölur 2-1. Torres var að spila sinn 100. leik fyrir félagið og skoraði 49. mark í Úrvalsdeildinni en þar hefur hann aðeins leikið 69 leiki.
Liðið situr nú í sjötta sæti deildarinnar og Mascherano er viss um að nú þegar Torres virðist vera kominn í gott form á ný þá muni hann verða gríðarlega mikilvægur í sókn liðsins í eitt af efstu fjórum sætunum.
,,Það er svo mikilvægt fyrir okkur að halda Fernando heilum," sagði fyrirliði Argentínumanna. ,,Við vitum að við getum unnið leiki án hans en þegar hann spilar þá sér maður virðinguna sem önnur lið sýna honum. Hann veldur andstæðingunum svo miklum vandræðum. Með Fernando og Stevie á vellinum, vitum við að eitthvað sérstakt getur gerst."
,,Það er gott fyrir liðið og sjálfstraustið sem þeir gefa okkur. Þegar þeir eru ekki í liðinu verða aðrir að stíga upp og David Ngog hefur gert vel í að leysa Torres af hólmi. En lykilleikmenn eru lykilleikmenn og því er ekki hægt að breyta. Við verðum að halda þeim heilum það sem eftir er tímabilsins."
Þeir Ngog og Torres sáu um markaskorunina gegn Wigan og næsti leikur er gegn botnliði Portsmouth á heimavelli þeirra.
,,Það mikilvægasta var sigurinn vegna þess að við þurftum á honum að halda," sagði Mascherano enn fremur. ,,Við viljum spila betur og bæta okkur, það er því mikilvægt að halda áfram. Við sjáum til hvort við vinnum ekki gegn Portsmouth og ef við getum það, þá verða það mjög góð þrjú stig. Það hefur verið svolítil pressa á okkur en alvöru leikmenn eru vanir því."
,,Við getum ekki gleymt því að Stevie og Fernando eru að koma til baka úr meiðslum og það er mikilvægt að hafa þá í liðinu vegna þess að þeir eru nánast ómissandi fyrir okkur."
TIL BAKA
Mascherano ánægður með Torres
Javier Mascherano hrósar Fernando Torres í hástert eftir leikinn gegn Wigan en þar komst Torres á blað yfir markaskorara á ný. Mascherano telur að Spánverjinn muni skjóta Liverpool ofar í stigatöflunni.Markið sem Torres skoraði reyndist mikilvægt því Wigan náðu að klóra í bakkann undir lok leiksins og urðu lokatölur 2-1. Torres var að spila sinn 100. leik fyrir félagið og skoraði 49. mark í Úrvalsdeildinni en þar hefur hann aðeins leikið 69 leiki.
Liðið situr nú í sjötta sæti deildarinnar og Mascherano er viss um að nú þegar Torres virðist vera kominn í gott form á ný þá muni hann verða gríðarlega mikilvægur í sókn liðsins í eitt af efstu fjórum sætunum.
,,Það er svo mikilvægt fyrir okkur að halda Fernando heilum," sagði fyrirliði Argentínumanna. ,,Við vitum að við getum unnið leiki án hans en þegar hann spilar þá sér maður virðinguna sem önnur lið sýna honum. Hann veldur andstæðingunum svo miklum vandræðum. Með Fernando og Stevie á vellinum, vitum við að eitthvað sérstakt getur gerst."
,,Það er gott fyrir liðið og sjálfstraustið sem þeir gefa okkur. Þegar þeir eru ekki í liðinu verða aðrir að stíga upp og David Ngog hefur gert vel í að leysa Torres af hólmi. En lykilleikmenn eru lykilleikmenn og því er ekki hægt að breyta. Við verðum að halda þeim heilum það sem eftir er tímabilsins."
Þeir Ngog og Torres sáu um markaskorunina gegn Wigan og næsti leikur er gegn botnliði Portsmouth á heimavelli þeirra.
,,Það mikilvægasta var sigurinn vegna þess að við þurftum á honum að halda," sagði Mascherano enn fremur. ,,Við viljum spila betur og bæta okkur, það er því mikilvægt að halda áfram. Við sjáum til hvort við vinnum ekki gegn Portsmouth og ef við getum það, þá verða það mjög góð þrjú stig. Það hefur verið svolítil pressa á okkur en alvöru leikmenn eru vanir því."
,,Við getum ekki gleymt því að Stevie og Fernando eru að koma til baka úr meiðslum og það er mikilvægt að hafa þá í liðinu vegna þess að þeir eru nánast ómissandi fyrir okkur."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

