| Sf. Gutt

Dregið í riðla fyrir Heimsmeistarakeppnina

Mynd með fréttÁ föstudaginn var dregið í riðla fyrir úrslitakeppni Heimsmeistarkeppninnar í Suður Afríku 2010. Fjöldi leikmanna Liverpool gæti farið þangað.  Hér að neðan er riðlaskiptingin. Þeir leikmenn Liverpool sem hafa verið í viðkomandi landsliðum upp á síðkastið eru taldir upp innan sviga.

A riðill: Suður Afríka, Mexíkó, Úrúgvæ og Frakkland.

B riðill: Argentína (Javier Mascherano og Emiliano Insua), Nígería, Suður Kórea og Grikkland (Sotirios Kyrgiakos).

C riðill: England (Steven Gerrard og Glen Johnson), Bandaríkin, Alsír og Slóvenía.

D riðill: Þýskaland, Ástralía, Serbía og Gana.

E riðill: Holland (Dirk Kuyt og Ryan Babel), Denmörk (Daniel Agger), Japan og Kamerún.

F riðill: Ítalía (Alberto Aquilani og Andrea Dossena), Paragvæ, Nýja Sjáland og Slóvakía (Martin Skrtel).

G riðill: Brasilía (Lucas Leiva), Norður Kórea, Fílabeinsstöndin og Portúgal.

H riðill: Spánn (Jose Reina, Fernando Torres og Albert Riera), Sviss (Philipp Degen), Hondúras og Chíle.







TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan