| Sf. Gutt

Rafa hælir Steven

Steven Gerrard mun núna um helgina leika sinn 500. leik fyrir hönd Liverpool. Rafael Benítez hælir hér fyrirliðanum sínum á þessum merkilegu tímamótum.

,,Það er geysilega mikið afrek fyrir hvaða leikmann sem er að ná að leika 500 leiki og hvað þá alla með sama félaginu. Hann hefur náð þessum áfanga með því að sýna eldmóð og staðfestu árum saman. Hann á vonandi eftir að spila ennþá fleiri leiki með Liverpool. Hann er á góðum aldri og er mikill fagmaður. Hann nær sínum 500. leik núna um helgina en hann á að geta leikið 200 eða jafnvel fleiri leiki með þessu félagi."

,,Steven er lykilmaður í liðinu og hann er leikmaður sem getur skipt sköpum í leikjum. Það eru nokkrir mikilvægir menn í liðinu en Stevie getur gert út um hvaða leik sem er á góðum degi. Það skiptir ekki máli ef hinir leikmennirnir spila ekki vel því hann getur unnið leiki sjálfur."

,,Þegar allir töluðu um að hann ætti að spila á miðri miðjunni skoraði hann rúmlega 20 mörk utan af hægri kanti. Hann er svo búinn að skora 21 og og 24 mörk á tveimur leiktíðum í röð með því að spila sem annar sóknarmaður. Hann skoraði mest 13 mörk af miðri miðjunni. Hann er búinn að læra að hann getur verið mjög hættulegur með því að spila aðeins framar á vellinum og hann er næstum óstöðvandi þegar hann ryðst inn í vítateiginn. Þetta er aðeins einn af mörgum styrkleikum hans. Hann getur líka skorað utan vítateigs og eins er hann hættulegur þegar um föst leikatriði er að ræða því hann er mjög sparkviss. Svo er hann góður tæklari. Það má því segja að hann sé hinn fullkomni miðjumaður."

,,Hann er alltaf að læra og núna kann hann miklu meira en þegar ég kom fyrst til félagsins. Hann er líka þroskaðri og leikskilningur hans er betri. Þess vegna getur hann spilað í miklu fleiri stöðum. Hann hefur alltaf mikil áhrif á gang leikja þegar hann spilar á miðjunni. En hann hefur líka sömu áhrif þegar hann spilar fyrir aftan sóknarmann."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan