L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
19.11.2009 22:11
|
Ólafur Haukur Tómasson
Kamerúnar vilja Ngog
Franski framherjinn David Ngog hefur staðið sig vel með Liverpool á leiktíðinni þar sem hann er búinn að skora fjögur mörk í níu leikjum. Framganga hans hefur ekki farið framhjá Paul Le Guen, þjálfara kamerúnska landsliðsins sem nýlega tryggði sér sæti á Heimsmeistaramótið næsta sumar, hann vill nú reyna að fá Ngog til að leika fyrir Kamerúni á mótinu.
Ngog hefur leikið með öllum yngri landsliðum Frakka og skorað þar fjöldann allan af mörkum á þeim tíma. Hann hefur hins vegar ekki leikið með A-landsliði Frakka og því er honum frjálst að taka þá ákvörðun að spila fyrir Kamerún þar sem að faðir hans er Kamerúni.
Ngog segist vera upp með sér yfir áhuga Le Guen og segist ætla að skoða málið: "Ég hef verið í sambandi við knattspyrnusamband Kamerún og nú þarf ég smá tíma til að íhuga málin. Ég er mjög upp með mér."
Tæki Ngog þá ákvörðun að spila fyrir hönd Kamerún þá gæti það þýtt að hann færi með liðinu í Afríkukeppnina sem fer fram í janúar næst komandi og myndi það þýða að Liverpool missi hann úr leikmannahópi sínum í tæpan mánuð sem er alls ekki gott eins og ástandið er í dag.
Það er greinilegt að Ngog hefur úr miklu að velja en muni hann velja að spila fyrir Kamerúni þá mun hann líklegast spila með Samuel Eto'o framherja Inter Milan og spennandi yrði að sjá hvernig hann gæti þróast við það að spila reglulega með tveimur skæðustu framherjum heims, Fernando Torres og Samuel Eto'o.
Þetta er auðvitað einnig kjörið tækifæri fyrir Ngog að fá tækifæri á að taka þátt í Heimsmeistaramótinu.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir