| Grétar Magnússon
David Ngog segist vera tilbúinn til að leiða sókn liðsins verði fjarvera Fernando Torres vegna meiðsla lengri en áætlað er. Frakkinn ungi hefur komið sterkur inní liðið á þessu tímabili og staðið sig ágætlega.
Hann hefur skorað fjögur mörk í níu leikjum á tímabilinu en hefur aðeins byrjað inná í fjórum leikjum af þessum níu. Hann veit sem er að hann er ekki fullmótaður leikmaður en hann telur að hann geti valdið vandræðum í vörn andstæðinganna í komandi leikjum ef hann fær tækifæri til þess.
,,Fernando er besti sóknarmaðurinn í heiminum í dag, hvaða leikmaður sem er ætti því í erfiðleikum með að fylla skarð hans," sagði Ngog.
,,Það eina sem ég get gert er að spila minn leik og vera ég sjálfur vegna þess að fáir leikmenn geta gert hlutina sem Fernando gerir. Ég get spilað sem eini sóknarmaður liðsins ef sú taktík er notuð, fyrir aftan fremsta mann eða með annan sóknarmann með mér, ég er því æstur í að sanna það fyrir stjóranum að ég er tilbúinn til að spila í hvaða kerfi sem er."
,,Ég hef trú á því að ég sé nógu góður til að vera sóknarmaður fyrir þetta félag og skora mörg mörk. En ég hef skilning á því að það kemur með tíma og reynslu. Ég verð ekki 21 árs fyrr en í apríl á næsta ári og hef því tímann fyrir mér og ég gæti ekki verið með betri lærimeistara en Rafael Benítez eða betri sóknarmann til að læra af en Fernando Torres."
Um spilamennsku liðsins á tímabilinu segir Ngog að liðið hafi ekki orðið lélegt á einni nóttu og að enn sé tími til að snúa við blaðinu og komast á gott skrið.
,,Við þurfum að hafa trú á okkar eigin getu sem einstaklingar, og sem liðs, vegna þess að ekki mikið hefur breyst frá síðasta tímabili þar sem við vorum ekki langt frá því að vinna deildina."
,,Liðið er enn mjög sterkt og við verðum að trúa á okkur. Ég veit að félagið krefst velgengni og þarf að vinna bikara, að tapa leikjum er því aldrei ásættanlegt."
TIL BAKA
Reynir ekki að líkjast Torres
David Ngog segist vera tilbúinn til að leiða sókn liðsins verði fjarvera Fernando Torres vegna meiðsla lengri en áætlað er. Frakkinn ungi hefur komið sterkur inní liðið á þessu tímabili og staðið sig ágætlega.Hann hefur skorað fjögur mörk í níu leikjum á tímabilinu en hefur aðeins byrjað inná í fjórum leikjum af þessum níu. Hann veit sem er að hann er ekki fullmótaður leikmaður en hann telur að hann geti valdið vandræðum í vörn andstæðinganna í komandi leikjum ef hann fær tækifæri til þess.
,,Fernando er besti sóknarmaðurinn í heiminum í dag, hvaða leikmaður sem er ætti því í erfiðleikum með að fylla skarð hans," sagði Ngog.
,,Það eina sem ég get gert er að spila minn leik og vera ég sjálfur vegna þess að fáir leikmenn geta gert hlutina sem Fernando gerir. Ég get spilað sem eini sóknarmaður liðsins ef sú taktík er notuð, fyrir aftan fremsta mann eða með annan sóknarmann með mér, ég er því æstur í að sanna það fyrir stjóranum að ég er tilbúinn til að spila í hvaða kerfi sem er."
,,Ég hef trú á því að ég sé nógu góður til að vera sóknarmaður fyrir þetta félag og skora mörg mörk. En ég hef skilning á því að það kemur með tíma og reynslu. Ég verð ekki 21 árs fyrr en í apríl á næsta ári og hef því tímann fyrir mér og ég gæti ekki verið með betri lærimeistara en Rafael Benítez eða betri sóknarmann til að læra af en Fernando Torres."
Um spilamennsku liðsins á tímabilinu segir Ngog að liðið hafi ekki orðið lélegt á einni nóttu og að enn sé tími til að snúa við blaðinu og komast á gott skrið.
,,Við þurfum að hafa trú á okkar eigin getu sem einstaklingar, og sem liðs, vegna þess að ekki mikið hefur breyst frá síðasta tímabili þar sem við vorum ekki langt frá því að vinna deildina."
,,Liðið er enn mjög sterkt og við verðum að trúa á okkur. Ég veit að félagið krefst velgengni og þarf að vinna bikara, að tapa leikjum er því aldrei ásættanlegt."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

