L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
12.11.2009 12:11
|
Sf. Gutt
Andrea á heimleið?
Ítalski landsliðbakvörðurinn Andrea Dossena hefur lítt komið við sögu hjá Liverpool á þessu keppnistímabili. Hann hefur aðeins spilað tvo leiki.
Meiðsli hafa eitthvað verið að plaga Ítalann en svo hefur hann ekki komist í liðið enda hefur Emiliano Insua spilað vel sem vinstri bakvörður.
Í sumar var vitað af áhuga ítalskra liða á Andrea og nú, þegar styttist í að opnist fyrir félagaskipti, eru hugsanleg vistaskipti aftur til umræðu. Hann gæti því verið á heimleið ef marka má umboðsmann hans Federico Pastorello.
"Það fóru fram viðræður í ágúst en ekkert varð úr samningum. Ástæðan var ekki bara tengd launamálum. Liverpool gaf okkur einfaldlega ekki grænt ljós á að semja við Napoli. Hann hefur spilað enn minna á þessu ári en því síðasta og það er klárt að Liverpool verður að selja hann. Ef Napoli hefur áhuga á Dossena vita þeir hvað til þarf."
Andrea Dossena hefur sagst vilja berjast fyrir stöðu sinni hjá Liverpool. En næsta sumar fer úrslitakeppni Heimsmeistarakeppninnar fram og landsliðsmenn allra þátttökuþjóða hennar vilja vera fastamenn í sínum liðum. Þetta, ásamt ýmsu öðru, gæti flýtt brottför Andrea.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir