| Birgir Jónsson

Benítez: Gefið Aquilani tíma

Rafa Benítez hvetur stuðningsmenn Liverpool til að gefa Alberto Aquilani tíma til að aðlagast liðinu eftir að Ítalinn lék sinn fyrsta leik í rauðu treyjunni. Aquilani lék síðusta korterið í 2-0 sigri varaliðsins á Sunderland á Prenton Park í gærkvöldi og sýndi lipra takta.  Stuðningsmennir hafa þurft að bíða síðan 7. ágúst eftir því að sjá Aquilani spila en það að sjá hann stíga stórt skref í áttina að fullum bata eftir aðgerð á ökla kom sem velkomin upplyfting eftir síðustu úrslit.

Þrátt fyrir að Benítez væri afar ánægður að sjá 20 milljóna manninn loksins hlaupa um knattspyrnuvöll eftir sex mánuði utan vallar var hann jafnframt fljótur að setja á það varnagla. Þrátt fyrir að margir voni að Aquilani muni leysa mörg vandamál er Benítez á þeirri skoðun að það sé ósanngjarnt að ætlast til of mikils af honum strax.

"Þegar nýir leikmenn koma er alltaf talað um vandamál sem þeir gætu átt í að aðlagast deildinni, vegna þess að hún er mjög hröð og líkamlegri en aðrar deildir," sagði Benítez.

"Þannig að fyrir nýjan leikmann sem hefur einnig verið meiddur eins og Alberto mun það verða enn erfiðara. Þetta er spurning um að láta hann æfa áfram og þegar hann er kominn í form þá verðum við að styðja hann. Við verðum að velja réttu augnablikin til að setja hann inn á völlinn. En hann er sífellt að læra og við erum spenntir fyrir að spila honum. Stuðningsmenn okkar eru mjög klárir og vita að leikmenn með hæfileika þurfa stundum tíma til að aðlagast. Hann mun þurfa einhvern tíma til að venjast okkur líka."

Þrátt fyrir að Benítez biðji um þolinmæði er það óumflýjanlegt að stuðningsmennirnir, sem eru orðnir langþreyttir á lélegum úrslitum, vilji fá að vita hvenær þeir fá að sjá Aquilani spila með aðalliðinu. Það væri frábær hvatning ef hann yrði í hópnum fyrir leikinn gegn Manchester United á sunnudaginn en deildarbikarleikurinn gegn Arsenal á miðvikudaginn er raunsærra markmið fyrir hann til að komast í snertingu við enska boltann. Það gæti verið að Aquilani aðlagist fyrr en margir ætla því eins og Benítez segir hefur Ítalinn verið að kynna sér allar hliðar enska leikstílsins meðan hann hefur verið utan vallar.

"Alberto er gáfaður, honum finnst gaman að fótbolta og hefur fylgst með leikjum okkar," sagði Benítez. "Hann hefur séð að hraðinn og líkamlegi þátturinn er öðruvísi hér. En það er munur á því sem þú sérð og hvernig þú spilar sjálfur en þegar hann kemur út og finnur andann hérna þá verður það mjög sérstakt fyrir hann. Hvenær mun hann spila? Það veltur á því hvernig hann er líkamlega. Hann hefur mjög gott þol en verður að auka snerpuna. Til að ná leikformi verður hann að spila leiki og það sem við verðum að gera er að gera okkur grein fyrir hvaða leikir henta honum og hversu lengi hann gæti spilað."
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan