| Sf. Gutt

Ian Rush hefur orðið

Þá er komið að pistli vikunnar. Að sjálfsögðu fjallar Ian um landsleikina og meiðsli. Um fátt annað er meira rætt í knattspyrnuheiminum þessa dagana. Ian vonar að landsliðþjálfar, þjóða sem sem eru komnar með þátttökurétt á HM, sýni skynsemi og taki ekki áhættu með leikmenn sem kannski eru tæpir.

Javier Mascherano, fyrirliði argentínska landsliðsins, er búinn að vera lykilmaður á miðjunni hjá Liverpool frá því hann kom til félagsins. Hann hefur þó ekki verið að leika vel það sem af er þessarar leiktíðar og Ian veltir ástæðum þess fyrir sér. Hann vonar að Argentínumönnum gangi vel í næsta leik. Gott gengi lærisveina Diego Maradona gæti komið Javier í gang.

Mörgum fannst undarlegt að Liverpool skyldi kaupa meiddan leikmann í sumar. Ítalinn Alberto Aquilani hefur enn ekki spilað með Liverpool en það mun vera stutt í að hann verði leikfær. Ian fjallar um þann ítalska sem margir binda vonir við að verði mikilvægur. Hér er pistillinn tilbúinn.

 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan