| Sf. Gutt

Landsleikjafréttir

Riðlakeppni forkeppni Heimsmeistarakeppninnar lauk í gærkvöldi. Ekki er þó alveg ljóst hvaða þjóðir fara til Suður Afríku því umspil er enn eftir.

Slóvakar komust í úrslitakeppni HM í fyrsta sinn í sögu þjóðarinnar. Þeir unnu Pólverja 1:0 á útivelli. Það mokaði niður snjó og völlurinn var hálfófær. Martin Skretel var í leikbanni en gleði hans hefur örugglega verið jafn mikil fyrir það. Það bar til tíðinda að Jerzy Dudek stóð í marki Pólverja. Hann hefur ekki leikið landsleik í þrjú ár eða svo en nýr landsliðsþjálfari valdi hann óvænt í liðið.

Argentínumenn unnu Úrúgvæ 1:0 á útivelli og var þetta fyrsti sigur gestanna þar í landi í þrjá áratugi eða svo. Mario Bolatti, sem kom inn á sem varamaður, skoraði eina markið undir lok leiksins. Javier Mascherano var fyrirliði Argentínumanna að venju og stóð sig vel á miðjunni. Lærisveinar Diego Maradona komust með sigrinum til Suður Afríku.

Lucas Leiva lék allan leikinn með Álfumeisturum Brasilíu þegar þeir gerðu 0:0 jafntefli við Venezúela. Brasilíumenn voru löngu öruggir með sitt sæti í úrslitakeppninni. Lucas er þá ekki verri en það að hann kemst í byrjunarlið Brasilíu!

Englendingar luku sinni forkeppni með 3:0 sigri á Hvít Rússum á Wembley. Glen Johnson var eini fulltrúi Liverpool í þeim leik. Peter Crouch, fyrrum leikmaður Liverpool, lét til sín taka með því að skora tvívegis og Shaun Wright Phillips skoraði eitt. Peter hefur nú skorað 18 landsliðsmörk og verður það að teljast vel af sér vikið hjá risanum. Enskir unnu alla leiki sína nema einn.

Í sama riðli burstaði Úkraína Andorra 6:0 og verður með í umspili. Andriy Voronin var ekki í liðshópnum og fer tvennum sögum af fjarveru hans. Landsliðþjálfarinn sagði hann meiddan en sögusagnir herma að hann hafi verið settur út úr hópnum eftir rifrildi við þjálfarann.

Daniel Agger lék sinn annan leik í röð og verður það að teljast til tíðinda. Danir töpuðu 1:0 fyrir Ungverjum á heimavelli sínum en tapið skipti ekki máli því Danir voru búnir að vinna riðilinn.
 
Yossi Benayoun var í ísraelska liðinu sem gerði markalaust jafntefli í Sviss. Ísraelsmenn áttu ekki möguleika á að komast áfram og stigið gladdi heimamenn sem eiga öruggt sæti í Suður Afríku.

Grikkir mörðu Luxemburg 2:1 og komust þar með í umspil. Sotirios Kyrgiakos var í byrjunarliðinu eftir leikbann en kom meiddur af leikvelli rétt fyrir leikhlé. Illur grunur er á að meiðslin séu slæm.

Spánverjar unnu Bosníu 5:2 á útivelli. Albert Riera var í liðinu en Fernando Torres var á bekknum. Sigurinn þýddi að Evrópumeistararnir unnu alla tíu leiki sína í riðlakeppninni og slík framganga er einstök.

Lærisveinar John Toshack náðu loks sigri en Wales vann 2:0 útisigur gegn Liechtenstein.

Hér eru myndir úr landsleikjum kvöldsins af vefsíðu BBC.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan