Forsíða

Frétt

14.10.2009 10:10 | Sf. Gutt

John Barnes sagt upp

John Barnes fékk ekki langan tíma til að setja mark sitt á Tranmere Rovers. Hann var ráðinn til félagsins í sumar sem framkvæmdastjóri en núna fyrir helgina var honum sagt upp störfum.

Tranmere, sem er í Liverpool, eins og allir ættu að vita hefur gengið illa á keppnistímabilinu. Liðið vann aðeins tvo sigra í fyrstu ellefu deildarleikjum sínum og er í fallsæti. Jason McAteer, fyrrum félagi John hjá Liverpool, var aðstoðarmaður hans og var honum líka sagt upp.

John Barnes hefur lengi haft mikinn hug á að reyna fyrir sér sem framkvæmdastjóri. Starfið hjá Tranmere var það þriðja sem hann hefur tekist á við. Hann var framkvæmdastjóri Celtic frá sumri 1999 fram í febrúar árið eftir þegar honum var sagt upp eftir slakt gengi liðsins. John var svo landsliðsþjálfari á Jamaíka í nokkra mánuði en hann sagði því starfi lausu þegar hann var ráðinn til Tranmere.

Til baka

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA