L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
12.10.2009 10:10
|
Ólafur Haukur Tómasson
Kenny ánægður með að Daniel snýr aftur
Danski varnarmaðurinn Daniel Agger er að snúa aftur í lið Liverpool eftir að hafa farið í aðgerð á baki sem hafa haldið honum frá keppni síðan á undirbúningstímabilinu. Daniel lék með varaliðinu um daginn, var í leikmannahópi Liverpool sem mætti Chelsea og lék allan leikinn í varnarlínu Dana sem mættu Svíum í landsleik síðastliðna helgi.
Kenny Dalglish er ánægður með að Agger snúi aftur í leikmannahóp Liverpool en varnarleikur liðsins hefur hlotið mikla gagnrýni á leiktíðinni og því er endurkoma hans kærkomin.
"Á meðan aðalliðið var í Ítalíu um daginn þá var Daniel Agger að snúa aftur úr meiðslum á ekki eins rómantískum stað í varaliðsdeildinni. Hann mun vera mjög ánægður, sömuleiðis knattspyrnustjórinn og aðdáendur liðsins, með að hann sé að snúa aftur.
Það er synd að hann skuli hafa misst svona mikið úr undanfarin ár vegna þess að hann er hágæða varnarmaður og með hann að nálgast leikform þá hefur stjórinn góða valmöguleika og fjölbreytileika í hjarta varnarinnar með þá Carra, Skrtel, Kyrgiakos og Agger heilan heilsu.
Þeir hafa allir sína einstöku krafta og þeir hafa allir landsleiki á bakinu og hafa mikla reynslu. Agger er fagur silkimjúkur leikmaður á þann veg hvernig hann ber boltann úr vörninni og mætir liðum sem liggja í vörn. Að geta kallað hann í liðið í framtíðinni mun vera mikilvægt fyrir liðið."
Daniel Agger hefur átt við mikil meiðsli að stríða á þeim tíma sem hann hefur verið hjá Liverpool og á síðustu leiktíð tókst honum aðeins að spila 26 leiki og hefur honum af þeim völdum gengið illa að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliðinu. En nú þegar varnarleikur liðsins hefur ekki verið upp á sitt besta þá er líklega aldrei betra tækifæri fyrir hann að vinna sér inn sæti í liðinu.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir