Forsíða

Frétt

12.10.2009 08:10 | Grétar Magnússon

Áhyggjur af meiðslum lykilmanna

Rafael Benítez er líklega ekki mjög kátur eftir landsleiki helgarinnar en þeir Fernando Torres, Steven Gerrard og Dirk Kuyt eru taldir hafa meiðst lítillega þegar þeir spiluðu með landsliðum sínum.

Gerrard var skipt útaf í hálfleik gegn Úkraínu og Torres var skipt útaf eftir 54. mínútur í 2-1 sigri Spánverja á Armeníu.  Upphaflega var óttast að Gerrard yrði frá í 7-10 daga eftri að hafa meiðst lítillega á nára en eftir læknisskoðun eru meiðslin ekki talin það alvarleg.  Gerrard er ennþá í enska landsliðshópnum sem mætir Hvíta-Rússlandi á Wembley á miðvikudaginn en forráðamenn Liverpool bíða enn eftir því að fá að vita nákvæmlega hver staðan á Gerrard er.

Staðan er svipuð hjá Torres en hann meiddist lítillega á æfingu spænska landsliðsins fyrir leikinn við Armeníu.  Engu að síður var hann í byrjunarliðinu og spilaði í 54 mínútur, menn vonast til þess að hann hafi verið tekinn útaf til að fyrirbyggja það að hann myndi meiðast í leiknum.

Dirk Kuyt spilaði með Hollendingum í vináttuleik gegn Ástralíu í Sydney og meiddist hann í leiknum á ökkla.  Hafði hann ekki tekið þátt í öllum æfingum landsliðsins fyrir leikinn en hann var í byrjunarliðinu og haltraði útaf.  Hann og Ryan Babel eru væntanlegir á Melwood á morgun (þriðjudag) og þá mun læknaliðið meta það hvort Kuyt verði lengi frá vegna meiðslanna.

Næstu leikir liðsins eru gríðarlega mikilvægir en á laugardaginn kemur heimsækir liðið Sunderland og má búast við mjög erfiðum leik þar.  Nokkrum dögum síðar koma Lyon menn í heimsókn í Meistaradeildinni og er sá leikur mikilvægur uppá framhaldið í þeirri keppni.  Varla þarf svo að minnast á stórleikinn við Manchester United þann 25. þessa mánaðar á Anfield.  Það væri því mjög bagalegt ef þessir þrír leikmenn gætu ekki tekið þátt í þessum leikjum liðsins, en nú er bara að vona það besta.

Til baka

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA
  • Orkan