| Grétar Magnússon

Gefum Alberto tíma

Fyrrum leikmaður Liverpool, Steve McManaman segir að stuðningsmenn félagsins verði að gefa Alberto Aquilani tíma til að aðlagast enska boltanum og öllu sem því fylgir.  Ekki sé ráðlegt að búast við of miklu af Ítalanum fyrst um sinn.

McManaman telur að Aquilani muni þurfa sinn tíma til að komast í rétta gírinn hjá félaginu.  Hann þurfi að komast í leikform og þurfi tíma til að venjast þeim hraða sem enski boltinn er spilaður á.

,,Við þurfum að fara varlega.  Hver einasti stuðningsmaður félagsins vonar að Aquilani verði það sem liðið vantar á miðjuna og hann hefur á sér gott orðspor.  En hann hefur verið meiddur lengi."

,,Allir vilja að hann byrji vel og að hann verði stórkostlegur frá fyrstu mínútu, en það verður mjög erfitt fyrir hann.  Hann er ungur ennþá.  Vonandi er hann þessi frábæri leikmaður sem allir vilja að hann sé.  En ég held að við ættum ekki að setja of mikla pressu á hann."

,,Allir erlendir leikmenn sem koma í deildina þurfa tíma til að venjast nýjum liðsfélögum og annari knattspyrnumenningu.  Þetta er mjög erfið og líkamlega krefjandi deild."
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan