| Sf. Gutt

Af eigendamálum


Einhverjar hræringar virðast vera hjá eigendum Liverpool F.C. og hugsanlega er hlutur í félaginu til sölu. Um daginn, þegar Liverpool lék við Hull City, var saudi arabíski prinsinn Faisal bin Fahad bin Abdullah gestur George Gillett. Að baki prinsins er öflugt fjárfestingarfyrirtæki sem kallast F6. George mun hugsanlega vera tilbúinn að selja þessu fyrirtæki sinn hlut í Liverpool F.C. og verða það að teljast stórtíðindi. Tom Hicks mun á hinn bóginn ekki ætla að selja sinn hlut.

Fram til þessa hafa George eða Tom ekki ljáð máls á því að selja sinn hlut í félaginu og hvorugur hefur getað selt án þess báðir væru sáttir við það. Í dag bar þó svo við að talsmaður Tom lét hafa eftir sér í fjölmiðlum að hann væri opinn fyrir þeim möguleika að George myndi selja sinn hlut. Talsmaðurinn lagði þó áherslu á að Tom ætli sér að eiga sinn hlut til lengri tíma og hans hlutur sé því alls ekki til sölu.

Talsmaður F6 sagði að þeir George og Tom yrðu sjálfir að komast að samkomulagi um sín mál áður en prinsinn kæmi inn í myndina sem hugsanlegur kaupandi að hlut í félaginu. Hann komst svo skemmtilega að orði að prinsinn væri ekki "hjónabandsráðgjafi"! Talið er að George ætli sér fljótlega til Saudi Arabíu til frekari viðræðna  

All margar fréttir um þetta efni hafa birst í fjölmiðlum síðustu daga og það virðist ekki útilokað að breyting sé í vændum á eignarhlut Liverpool F.C. Flestir munu telja að allar breytingar á honum séu til bóta enda hefur ósamkomulag þeirra George Gillett og Tom Hicks lengi bitnað á félaginu sem þeir eiga þó saman.
 


 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan