L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
19.11.2009 17:11
|
Sf. Gutt
Daniel Agger íhugaði að hætta!
Daniel Agger hefur átt við þrálát meiðsli að stríða síðustu tvö árin. Upphaf óláns hans var að hann ristarbrotnaði haustið 2007. Þegar þau meiðsli löguðust loksins tóku við erfið bakmeiðsli. Þau meiðsli voru orðin honum svo erfið að hann íhugaði, núna í sumar, að hætta knattspyrnuiðkun!
"Ég var svo slæmur í bakinu að ég íhugaði að hætta knattspyrnuiðkun fyrir fullt og allt. Ég spurði sjálfan mig að því hvort það væri þess virði að halda áfram að spila knattspyrnu. Það er nefnilega eitthvað stórkostlega mikið að þegar maður getur ekki einu sinni lyft barninu sínu upp úr rúminu."
Þetta sagði Daniel í viðtali við danska blaðið Jyllandsposten.
Daniel er búinn að spila fimm leiki á þessu keppnistímabili. Hann missti af upphafi leiktíðarinnar vegna bakmeiðslanna sem hann segir frá hér. Hann hefur ekki náð að hrista þau af sér en vonandi tekst það sem fyrst því hans hefur verið sárt saknað í vörn Liverpool.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir