| Sf. Gutt
Undankeppni Heimsmeistarakeppninnar er alveg að klárast. Nú er að verða ljóst hvaða þjóðir fá farseðil til Suður Afríku.
Daniel Agger og félagar hans stuðluðu að mikilli þjóðhátíð í Danaveldi. Hann lék sinn fyrsta leik á keppnistímabilinu þegar Danir unnu granna sína Svía 1:0 á Parken. Jakob Poulsen skoraði markið dýrmæta með góðu skoti utan vítateigs á 79. mínútu. Sigurinn kom Dönum til Suður Afríku. Vel af sér vikið hjá dönsku piltunum!
Slóvakar töpuðu 2:0 á heimavelli fyrir grönnum sínum frá Slóveníu. Martin Skrtel var með. Slóvakar eiga enn svolitla möguleika á að komast áfram.
Yossi Benayoun leiddi Ísraelsmenn til 3:1 sigurs á Moldóvíu.
Spánverjar unnu Armeníu 2:1 á útivelli og hafa þar með unnið alla leiki sína í riðlinum. Jose Reina og Fernando Torres voru í byrjunarliðinu. Fernando var tæpur vegna meiðsla fyrir leikinn og fór af velli snemma í síðari hálfleik.
England tapaði 1:0 í Úkraínu. Enskir höfðu, fyrir þennan leik, unnið alla leiki sína í riðlinum. Steven Gerrard lék fyrri hálfleikinn en fór þá af velli og leikur grunur á meiðslum. Glen Johnson lék allan leikinn. Robert Green markmaður var rekinn snemma af velli og David James, fyrrum leikmaður Liverpool, kom inn á. Sergiy Nazarenko skoraði sigurmarkið með bylmingsskoti í fyrri hálfleik. Andriy Voronin var á bekknum og kom ekki við sögu.
Það er næsta víst að Emiliano Insua á aldrei eftir að gleyma fyrsta landsleik sínum! Argentínumenn unnu Perú 2:1 í mígandi rigningu í Buenos Aires. Gonzalo Higuain kom Argentínu yfir í sínum fyrsta landsleik. Á lokamínútu leiksins jafnaði Hernan Rengifo en, sem betur fer fyrir Argentínu sem þurfti nauðsynlega sigur, var ekki allt búið. Það var komið fram yfir venjulegan leiktíma þegar varamaðurinn Martin Palermo skoraði af stuttu færi. Allt gekk af göflunum og Diego Maradona renndi sér á maganum í bleytunni í stjórnlausri gleði! Javier Mascherano var fyrirliði Agentínumanna.
John Toshack og lærisveinar hans töpuðu 2:1 í Finnlandi. Craig Bellamy, fyrrum leikmaður Liverpool, skoraði mark Wales. Goðsagnirnar Samy Hyypia og Jari Litmanen voru í liði Finna.
Fyrrum lánsmaður Liverpool Nicolas Anelka skoraði eitt marka Frakka þegar þeir unnu Færeyinga 5:0. Andre-Pierre Gignac skoraði tvö og þeir William Gallas og Karim Benzema eitt hvor. Alou Diarra, sem eitt sinn var á mála hjá Liverpool, var varamaður. Hann virðist vera fastamaður í landsliðshópnum.
Hollendingar fóru alla leið til Ástralíu og léku vináttuleik við heimamenn. Dirk Kuyt hóf leikinn en fór meiddur af velli. Ryan Babel leysti félaga sinn af hólmi. Harry Kewell, sem nú leikur með Galatasaray, lék með Ástralíu. Ekkert mark var skorað í leiknum.
Hér eru myndir úr landsleikjum kvöldsins.
TIL BAKA
Landsleikjafréttir
Undankeppni Heimsmeistarakeppninnar er alveg að klárast. Nú er að verða ljóst hvaða þjóðir fá farseðil til Suður Afríku.Daniel Agger og félagar hans stuðluðu að mikilli þjóðhátíð í Danaveldi. Hann lék sinn fyrsta leik á keppnistímabilinu þegar Danir unnu granna sína Svía 1:0 á Parken. Jakob Poulsen skoraði markið dýrmæta með góðu skoti utan vítateigs á 79. mínútu. Sigurinn kom Dönum til Suður Afríku. Vel af sér vikið hjá dönsku piltunum!
Slóvakar töpuðu 2:0 á heimavelli fyrir grönnum sínum frá Slóveníu. Martin Skrtel var með. Slóvakar eiga enn svolitla möguleika á að komast áfram.
Yossi Benayoun leiddi Ísraelsmenn til 3:1 sigurs á Moldóvíu.
Spánverjar unnu Armeníu 2:1 á útivelli og hafa þar með unnið alla leiki sína í riðlinum. Jose Reina og Fernando Torres voru í byrjunarliðinu. Fernando var tæpur vegna meiðsla fyrir leikinn og fór af velli snemma í síðari hálfleik.
England tapaði 1:0 í Úkraínu. Enskir höfðu, fyrir þennan leik, unnið alla leiki sína í riðlinum. Steven Gerrard lék fyrri hálfleikinn en fór þá af velli og leikur grunur á meiðslum. Glen Johnson lék allan leikinn. Robert Green markmaður var rekinn snemma af velli og David James, fyrrum leikmaður Liverpool, kom inn á. Sergiy Nazarenko skoraði sigurmarkið með bylmingsskoti í fyrri hálfleik. Andriy Voronin var á bekknum og kom ekki við sögu.
Það er næsta víst að Emiliano Insua á aldrei eftir að gleyma fyrsta landsleik sínum! Argentínumenn unnu Perú 2:1 í mígandi rigningu í Buenos Aires. Gonzalo Higuain kom Argentínu yfir í sínum fyrsta landsleik. Á lokamínútu leiksins jafnaði Hernan Rengifo en, sem betur fer fyrir Argentínu sem þurfti nauðsynlega sigur, var ekki allt búið. Það var komið fram yfir venjulegan leiktíma þegar varamaðurinn Martin Palermo skoraði af stuttu færi. Allt gekk af göflunum og Diego Maradona renndi sér á maganum í bleytunni í stjórnlausri gleði! Javier Mascherano var fyrirliði Agentínumanna.
John Toshack og lærisveinar hans töpuðu 2:1 í Finnlandi. Craig Bellamy, fyrrum leikmaður Liverpool, skoraði mark Wales. Goðsagnirnar Samy Hyypia og Jari Litmanen voru í liði Finna.
Fyrrum lánsmaður Liverpool Nicolas Anelka skoraði eitt marka Frakka þegar þeir unnu Færeyinga 5:0. Andre-Pierre Gignac skoraði tvö og þeir William Gallas og Karim Benzema eitt hvor. Alou Diarra, sem eitt sinn var á mála hjá Liverpool, var varamaður. Hann virðist vera fastamaður í landsliðshópnum.
Hollendingar fóru alla leið til Ástralíu og léku vináttuleik við heimamenn. Dirk Kuyt hóf leikinn en fór meiddur af velli. Ryan Babel leysti félaga sinn af hólmi. Harry Kewell, sem nú leikur með Galatasaray, lék með Ástralíu. Ekkert mark var skorað í leiknum.
Hér eru myndir úr landsleikjum kvöldsins.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

