Aquilani gæti reynst betri en Alonso
Stuðningsmenn Liverpool bíða væntanlega flestir spenntir eftir því að sjá loksins ítalska miðjumanninn Alberto Aquilani spila sinn fyrsta leik fyrir Liverpool síðan hann var keyptur frá Roma aðeins örfáum klukkustundum eftir að kauptilboð Real Madrid í Xabi Alonso hafði verið samþykkt.Aquilani hefur ekki enn leikið fyrir Liverpool síðan hann kom á tuttugu milljónir punda í ágúst mánuði en hann hefur verið að jafna sig af slæmum meiðslum í ökkla. Endurhæfing hans gengur vonum framar og líklegt er að hann muni loksins leika fyrir Liverpool í október mánuði.
Hann hefur sjálfur sagst vera ólíkur Alonso og telur hann að þeir hefðu jafnvel getað spilað saman á miðjunni með góðum árangri. Rafael Benítez slær í sömu strengi og Aquilani og segir hann að sá ítalski gæti reynst öflugri í sóknarleik liðsins heldur en Alonso var á þeim fimm árum sem hann var hjá félaginu.
"Alberto er farinn að hlaupa aftur og þegar við ferðumst til Ítalíu fyrir Meistaradeildina í vikunni þá mun hann vera eftir og halda endurhæfingu sinni áfram. Ég veit að stuðningsmennirnir eru vonsviknir en við höfum keypt góðan leikmann með mikla hæfileika og ég óttaðist aldrei að við þyrftum í ógnvæni að bíða eftir að hann yrði klár.
Xabi var leikmaður sem vildi sækja boltann og spilaði honum síðan stutt eða langt. Aquilani vill spila ofar á vellinum heldur en það. Hann vill vera á vallarhelmingi andstæðinganna svo að hann gæti búið til marktækifæri. Á því sviði að senda til að gefa framherjunum færi á að skora þá er hann betri en Alonso.
Þegar hann er heill þá mun liðið vera enn hættulegra vegna þess að hann hefur hæfileikana til að finna sendingar á Torres og Gerrard sem gefa þeim tækifæri til að skora. Hann er á undan áætlun fyrir endurkomuna en við verðum að fara varlega með hann." sagði Rafael Benítez.
Þó að ekki sé komin nein tímasetning á hugsanlega komu hans í leikmannahópinn þá er talið líklegt að hann gæti verið í leikmannahópnum í leiknum gegn Sunderland þann 17. október næst komandi. Spennandi verður að sjá hvernig Aquilani muni koma inn í lið Liverpool sem hefur verið að spila öflugan sóknarbolta það sem af er liðið tímabilsins og gaman verður að sjá hvaða bætingu hann muni koma með í leik liðsins.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

