L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
17.09.2009 12:09
|
Sf. Gutt
Rafa hælir Dirk
Dirk Kuyt skoraði sigurmark Liverpool gegn ungverska liðinu Debrecen í gærkvöldi. Rafael Benítez var eins og svo oft áður ánægður með sinn mann.
"Dirk er mikilvægur leikmaður fyrir okkur. Hann er mjög góður sóknarmaður og svo getur hann spilað á hægri vængnum eða inni á miðjunni. Vegna þess hversu duglegur hann er þá skapar hann alltaf hættu hvar svo sem hann spilar á vellinum. Hann er alltaf vakandi í vítateignum tilbúinn að ná fráköstum þegar markmenn missa boltann eftir skot."
"Hann er alltaf vel á verði og hefur góðan leikskilning. Hann hefur oft skorað mörk, með því að hirða fráköst í vítateignum, eins og hann gerði gegn Debrecen. Ég veit að hann á eftir að gera þetta oft í framtíðinni og það má stóla á að hann geri það."
Dirk Kuyt hefur verið iðinn við að skora fyrir Liverpool í Evrópukeppni og markið sem hann skoraði í gærkvöldi var tólfta Evrópumark hans. Alls hefur hann skorað 43 mörk fyrir Rauða herinn.
Dirk hefur leikið vel það sem af er keppnistímabilsins og markið hans í gærkvöldi var þriðja markið sem hann skorar. Hollendingurinn virðist því ætla að halda áfram á sömu braut og á síðustu sparktíð þegar hann lék frábærlega.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Sjá leikskýrslu
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir