Forsíða

Frétt

03.09.2009 22:09 | Sf. Gutt

Guðlaugur valinn í undir 21. árs liðið

Fulltrúi Íslands í Liverpool er í íslenska undir 21. árs landsliðinu sem leikur á Bretlandi í næstu viku. Guðlaugur Viktor Pálsson var valinn í 21. árs landsliðshópinn sem leikur við jafnaldra sína á Norður Írlandi. Spili Guðlaugur þá verður það þriðji landsleikur hans með þessu landsliði.

Hér er landsliðshópurinn í heild sinni.

Markverðir:
Haraldur Björnsson, Valur
Óskar Pétursson, Grindavík

Varnarmenn:
Hólmar Örn Eyjólfsson, West Ham
Hjörtur Logi Valgarðsson, FH
Skúli Jón Friðgeirsson, KR
Elfar Freyr Helgason, Breiðablik
Jósef Kristinn Jósefsson, Grindavík
Jón Guðni Fjóluson, Fram

Miðjumenn:
Aron Einar Gunnarsson, Coventry
Birkir Bjarnason, Viking
Bjarni Þór Viðarsson, Twente
Jóhann Berg Guðmundsson, AZ Alkmaar
Guðmundur Kristjánsson, Breiðablik
Almarr Ormarsson, Fram
Guðlaugur Victor Pálsson, Liverpool

Sóknarmenn:
Rúrik Gíslason, OB
Alfreð Finnbogason, Breiðablik
Kolbeinn Sigþórsson, AZ Alkmaar

Þjálfari liðsins er Eyjólfur Sverrisson.

Guðlaugur hefur spilað báða leiki varaliðs Liverpool það sem af er leiktíðarinnar. Hann lék flesta æfingaleiki varaliðsins á undirbúningstímabilinu og var fyrirliði í nokkrum þeirra.



Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin