| Sf. Gutt

Liverpool mætir Leeds United!

Í dag var dregið til þriðju umferðar Deildabikarsins. Liverpool mætir gömlum keppinautum í fyrsta sinn um nokkurt skeið. Liverpool fékk það verkefni að taka hús á Leeds United og fer hólmgangan fram á Elland Road í Jórvíkurskíri. Leikurinn fer fram undir lok september og ráðast úrslitin með framlengingu og vítaspyrnukeppni ef með þarf.

Liðin hafa ekki leikið síðan á keppnistímabilinu 2003/04 en þá féll Leeds úr efstu deild. Liðið er nú í þriðju deild ef atvinnumannadeildirnar fjórar eru taldar. Leeds má því muna sinn fífil fegurri frá því það var eitt af sterkustu liðum á Englandi. Liðinu hefur gengið vel það sem af er leiktíðar og Liverpool á örugglega erfiðan leik framundan.  

Hér er drátturinn í heild sinni.

Arsenal v West Brom
Chelsea v QPR
Bolton v West Ham
Barnsley v Burnley
Hull City v Everton
Leeds Utd v Liverpool
Manchester United v Wolves
Manchester City v Fulham
Sunderland v Birmingham City
Peterborough v Newcastle
Carlisle Utd v Portsmouth
Nottingham Forest v Blackburn Rovers
Stoke City v Blackpool
Scunthorpe v Port Vale
Preston v Tottenham Hotspur
Aston Villa v Cardiff  

Liverpool hefur oftast unnið Deildabikarinn allra liða eða sjö sinnum. Síðast vannst sigur í keppninni árið 2003 þegar Liverpool vann eftirminnilegan 2:0 sigur á Manchester United með mörkum frá Steven Gerrard og Michael Owen.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan