L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
07.09.2009 12:09
|
Sf. Gutt
Mótmæli!
Stuðningsmenn Liverpool eru enn ósáttir við eigendur félagsins og létu álit sitt á þeim berlega í ljós á dögunum þegar Liverpool mætti Stoke City á Anfield Road.
Margir áhorfendur héldu þá mótmælaspjöldum á lofti þar sem þeir George Gillett og Tom Hicks voru vinsamlegast beðnir um að yfirgefa félagið nú þegar. Það má því ljóst vera að þeir amerísku eru ekki ofarlega að vinsældarlista þorra stuðningsmanna Liverpool.
Þau samtök, sem stefna að því að kaupa Liverpool F.C., eru enn í fullu fjöri en ekki er gott að segja til um hvort þau komist í þá aðstöðu. Svo er alltaf spurning um einhverja moldríka í Arabaheiminum! Að minnsta kosti er það á hreinu að meira fjármagn væri mjög vel þegið inn í rekstur Liverpool F.C.
Lítið heyrist nú frá þeim félögum George og Tom. Þó lét Tom hafa eftir sér um helgina að hafist yrði handa um byggingu nýja Anfield um leið og fjármálamarkaðir væru komnir í lag eftir kreppuna. Þá er bara að bíða eftir því að kreppan lagist!
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikskýrslu
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir