| Sf. Gutt
Kaupin á Sotirios Kyrgiakos eru nú frágengin. Liverpool keypti gríska landsliðsmanninn frá AEK í Aþenu. Hermt er að kaupverðið sé tvær milljónir sterlingspunda. Grikkinn gerði tveggja ára samning við Liverpool með möguleika á eins árs framlengingu.
Rafael Benítez er mjög ánægður með að hafa fengið Grikkjann til Liverpool.
"Hann er harður varnarmaður, sterkur og góður skallamaður. Hann er líka mjög ákveðinn. Þetta eru allt kostir sem við vorum að leita eftir þegar við vorum að horfa eftir leikmanni. Hann getur skorað mörk og ógnað eftir horn- og aukaspyrnur. Hann er mjög sterkur varnarmaður en hann á eftir að þurfa tíma til að aðlagast Úrvalsdeildinni. Hann á eftir að reynast góð kaup fyrir okkur."
"Við vissum af honum þegar hann spilaði með Rangers og við höfum séð myndbönd af honum þegar hann var hjá Frankfurt. Njósnalið okkar var búið að safna miklum upplýsingum um hann. Við ræddum saman um hvað hann hefur afrekað áður og settum það í samhengi við það hlutverk sem við viljum að hann leiki hjá okkur. Hann veit hvað við viljum að hann geri og hann er tilbúinn að leggja hart að sér hér.
Sotirios Kyrgiakos er fyrsti Grikkinn til að spila með Liverpool.
Hér má skoða vefsíðu sem kappinn heldur úti.
TIL BAKA
Kaupin á Sotirios Kyrgiakos frágengin!
Kaupin á Sotirios Kyrgiakos eru nú frágengin. Liverpool keypti gríska landsliðsmanninn frá AEK í Aþenu. Hermt er að kaupverðið sé tvær milljónir sterlingspunda. Grikkinn gerði tveggja ára samning við Liverpool með möguleika á eins árs framlengingu. Rafael Benítez er mjög ánægður með að hafa fengið Grikkjann til Liverpool.
"Hann er harður varnarmaður, sterkur og góður skallamaður. Hann er líka mjög ákveðinn. Þetta eru allt kostir sem við vorum að leita eftir þegar við vorum að horfa eftir leikmanni. Hann getur skorað mörk og ógnað eftir horn- og aukaspyrnur. Hann er mjög sterkur varnarmaður en hann á eftir að þurfa tíma til að aðlagast Úrvalsdeildinni. Hann á eftir að reynast góð kaup fyrir okkur."
"Við vissum af honum þegar hann spilaði með Rangers og við höfum séð myndbönd af honum þegar hann var hjá Frankfurt. Njósnalið okkar var búið að safna miklum upplýsingum um hann. Við ræddum saman um hvað hann hefur afrekað áður og settum það í samhengi við það hlutverk sem við viljum að hann leiki hjá okkur. Hann veit hvað við viljum að hann geri og hann er tilbúinn að leggja hart að sér hér.
Sotirios Kyrgiakos er fyrsti Grikkinn til að spila með Liverpool.
Hér má skoða vefsíðu sem kappinn heldur úti.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

