Forsíða

Frétt

21.08.2009 14:08 | Grétar Magnússon

Ég er sterkari

Miðjumaðurinn Lucas spilaði mjög vel á undirbúningstímabilinu og hefur haldið þeirri spilamennsku áfram í fyrstu tveimur leikjum deildarinnar á tímabilinu.  Hann segir að erfiðar stundir eftir komu sína til Englands hafi gert sig að betri persónuleika og leikmanni.

Lucas var keyptur frá Gremio árið 2007 og hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliðinu síðan þá.  Eftir brottför Xabi Alonso hefur hann fengið fleiri tækifæri og hefur klárlega nýtt þau vel.  Hann var í dag kallaður upp í brasilíska landsliðið fyrir leiki í undankeppni HM gegn Chile og Argentínu.

Lucas hafði þetta að segja:  ,,Í Brasilíu virtist allt ganga mér í haginn allt frá því að ég var lítill drengur.  Ég spilaði vel, skoraði mörk og vann titla - þetta virtist auðvelt.  Þegar ég kom til Liverpool varð allt öðruvísi og ég átti erfiðar stundir.  Hinsvegar hefur þessi reynsla hjálpað mér.  Þetta hefur gert mig sterkari."

,,Ég gerði mér grein fyrir því að ég þurfti að styrkja mig.  Ég hef lagt hart að mér á undirbúningstímabilinu og ég á auðveldara með að standast líkamlegar kröfur enska boltans."

Glen Johnson var réttilega valinn maður leiksins gegn Stoke en Rafa Benítez var fljótur að benda á þátt Lucas í sigrinum góða og var stjórinn hæstánægður með framlag hans í leiknum.

Lucas bætti við:  ,,Rafa hefur sagt mér að spila hærra á vellinum, sérstaklega gegn liðum eins og Stoke.  Gegn liðum sem verjast mikið hefur hann sagt mér að spila hærra uppi á vellinum.  Þegar Javier (Mascherano) nær boltanum get ég fært mig framar og það gerir mér mögulegt að sækja eins mikið og ég mögulega get.  Að vera sókndjarfari er lykillinn að því að vinna lið sem koma á Anfield til að verjast."

,,Núna held ég að ég geti sótt meira og ég hef trú á því að ég geti átt gott tímabil og hjálpað liðinu í atlögunni að enska meistaratitlinum að nýju.  Mér finnst ég vera sterkari.  Ég er að spila vel og ég nýt mín hér.  Ég vona að það haldi áfram."

Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin