21.08.2009 08:08 | SSteinn
Aðeins 14 pláss eftir í Liverpool Open

Skráningar í Liverpool Open golfmótið, sem fram fer á Setbergvellinum þann 30. september nk. fara vel af stað. Aðeins eru 14 pláss laus í mótið og því er um að gera að skrá sig sem fyrst því það er nokkuð ljóst að fullt verður í mótið.
Skráningar í það fara fram á GSÍ www.golf.is
Mótsfyrirkomulagið verður eftirfarandi:
Ræst út á öllum teigum samtímis klukkan 13:00 stundvíslega og er mæting klukkan 12:00 á svæðið.
Punktakeppni með forgjöf
Hámarksforgjöf 24 (karlar) og 28 (konur)
Verðlaun fyrir fyrstu 3 sætin
Nándarverðlaun á 2. og 5. braut
Teiggjöf
Skráning á GSÍ www.golf.is og hjá golfklúbbnum Oddi í síma 565-9092
Þátttökugjald er kr. 2.500 og greiðist fyrirfram með kreditkorti.
Skylda er að klæðast Liverpool treyju, brot á þeirri reglu þýðir frávísun úr mótinu.
Ath. skráning á netinu er eingöngu til að velja sér ráshóp því ræst verður út á öllum teigum klukkan 13:00.
Mótsstjóri: Svavar Geir Svavarsson
Dómari: Hákon Jónsson
Til baka