Forsíða

Frétt

20.08.2009 23:08 | HI

Daniel Agger frá í tvo mánuði

Daniel Agger fer á þriðjudaginn í aðgerð til Frakklands til að fá sig góðan af bakmeiðslunum sem hafa verið að hrjá hann. Aðgerðin þýðir að Agger verður frá æfingum og keppni í allt að tvo mánuði. Sjálfur stefnir hann að því að vera búinn að ná sér þegar danska landsliðið leikur gegn Svíum og Ungverjum í undankeppni HM.

Enn aukast því meiðslavandræðin í vörninni þar sem Martin Skrtel gat ekki leikið gegn Stoke vegna meiðsla. Það er þó bót í máli að Grikkinn Sotirios Kyrgiakos er á leið til liðsins, sem ætti að auka breiddina.

Agger hefur verið óheppinn með meiðsl síðan hann kom til Liverpool, og sú óheppni ætlar greinilega að elta hann eitthvað áfram.

Til baka

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA
  • Orkan
  • EJS hýsir vefinn okkar