L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
16.08.2009 09:08
|
Heimir Eyvindarson
Andriy Voronin aftur til Berlínar?
Samkvæmt þýska blaðinu Bild eru þreifingar í gangi milli Hertha Berlín og Andriy Voronin, en Úkraínski framherjinn þótti standa sig vel í herbúðum Berlínarliðsins á síðustu leiktíð.
Blaðið hefur eftir Voronin að hann sé í sambandi við forráðamenn félagsins og nú eigi í raun aðeins eftir að semja við Liverpool um verð. Framkvæmdastjóri Hertha,
Michael Preetz, staðfestir að viðræður séu í gangi milli félagsins og Voronin.
Preetz leitar nú logandi ljósi að leikmanni sem getur styrkt sóknarleik liðsins og
Úkraínski framherjinn sýndi það síðasta vetur að hann getur auðveldlega gert usla í Bundesligunni. Berlínarliðið reyndi að kaupa Voronin í vor þegar lánssamningur hans var við það að renna út, en samningar milli félagsins og Liverpool tókust ekki þá.
,,Ég hef verið í sambandi við
Michael Preetz
og hann vill fá mig aftur til Berlínar. Ég hef aldrei dregið dul á það að mér líkaði lífið vel í Berlín, en ég er líka alveg til í að vera um kyrrt í Liverpool. Svo framarlega sem ég fæ að spila", segir Voronin í samtali við Bild í gær.
Andriy Voronin er 30 ára gamall og er samningsbundinn Liverpool til 2011. Talið er að verðmiðinn á kappanum sé um það bil 4 milljónir evra.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir