Forsíða

Frétt

16.08.2009 10:08 | SSteinn

Fánadagur á Players í dag

Fyrsti fánadagur Liverpoolklúbbsins á Íslandi á þessu tímabili verður haldinn á heimavelli okkar, Players í Kópavogi, í dag.  Liverpool leikur gegn Tottenham og hefst leikurinn klukkan 15:00, en við hvetjum alla til að mæta tímanlega og taka þátt í að útbúa góða stemmningu.

Að vanda verða valdir best klæddu stuðningsmennirnir, bæði yngri og eldri.  Getraunin góða verður í gangi og dregið verður úr réttum svörum í lok leiks.  Nú fjölmennum við á svæðið og troðfyllum staðinn.

Til baka

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA
  • Orkan
  • EJS hýsir vefinn okkar