| Ólafur Haukur Tómasson
Í gær bauð Liverpool lægri hlut í æfingaleik gegn spænska liðinu Espanyol en leiknum lauk með þremur mörkum gegn engu og þótti Liverpool liðið ekki leika nægilega vel. Albert Riera, sem lék gegn sínu gamla félagi, segir að hann telji formið sem leikmennirnir komast í eftir þessa leiki töluvert mikilvægari en úrslitin þegar liðið undirbýr sig fyrir komandi tímabil.
"Ég held að þessir leikir snúist fyrst og fremst um að gera sig klára fyrir tímabilið. Þetta var frábær leikur fyrir þá og þeir léku betur en við. Þeir hafa æft hátt í tíu dögum meira en við og ég held að það hafi sést fljótt. Þegar maður er í undirbúningstímabili þá eru tíu dagar mjög mikið.
Sumir okkar komu seint aftur eftir að hafa leikið landsleiki og við höfum aðeins haft tíu eða tólf daga til æfinga. Við þurfum ögn meira áður en tímabilið hefst, en við munum vera klárir þegar þar að kemur. Auðvitað erum við ósáttir með að hafa tapað, þrátt fyrir að þetta skuli hafa verið vináttuleikur því maður vill alltaf vinna en eins og ég segi þá snýst þetta allt um það að vera klár fyrir fyrsta deildarleik." sagði Riera við opinbera heimasíðu Liverpool.
Riera lék eins og áður kom fram með Espanyol þar sem hann var í þrjú tímabil áður en hann var keyptur til Liverpool fyrir síðustu leiktíð. Hann kom inn á í seinni hálfleik og þurfti hann að heyra hávært baul frá stuðningsmönnum Espanyol, stuðningsmönnunum sem höfðu dáð hann og dýrkað áður fyrr.
"Ég átti þrjú mjög góð ár hjá Espanyol, en auðvitað vilja stuðningsmennirnir að leikmennirnir verði áfram hjá félagi þeirra og verða ekki ánægðir þegar þeir fara. Nú spila ég hins vegar með Liverpool. Ég er mjög ánægður hér og stuðningsmennirnir styðja við mig, það er mikilvægasti hluturinn." bætti Riera við.
Riera lék fjörtíu leiki með Liverpool á sinni fyrstu leiktíð hjá félaginu og skoraði hann fimm mörk, flest öll þeirra stórglæsileg. Hann er reglulegur byrjunarliðsmaður hjá spænska landsliðinu þessa dagana og mun hann líklega koma enn sterkari inn í komandi tímabil.
TIL BAKA
Riera telur formið mikilvægara en úrslit
Í gær bauð Liverpool lægri hlut í æfingaleik gegn spænska liðinu Espanyol en leiknum lauk með þremur mörkum gegn engu og þótti Liverpool liðið ekki leika nægilega vel. Albert Riera, sem lék gegn sínu gamla félagi, segir að hann telji formið sem leikmennirnir komast í eftir þessa leiki töluvert mikilvægari en úrslitin þegar liðið undirbýr sig fyrir komandi tímabil."Ég held að þessir leikir snúist fyrst og fremst um að gera sig klára fyrir tímabilið. Þetta var frábær leikur fyrir þá og þeir léku betur en við. Þeir hafa æft hátt í tíu dögum meira en við og ég held að það hafi sést fljótt. Þegar maður er í undirbúningstímabili þá eru tíu dagar mjög mikið.
Sumir okkar komu seint aftur eftir að hafa leikið landsleiki og við höfum aðeins haft tíu eða tólf daga til æfinga. Við þurfum ögn meira áður en tímabilið hefst, en við munum vera klárir þegar þar að kemur. Auðvitað erum við ósáttir með að hafa tapað, þrátt fyrir að þetta skuli hafa verið vináttuleikur því maður vill alltaf vinna en eins og ég segi þá snýst þetta allt um það að vera klár fyrir fyrsta deildarleik." sagði Riera við opinbera heimasíðu Liverpool.
Riera lék eins og áður kom fram með Espanyol þar sem hann var í þrjú tímabil áður en hann var keyptur til Liverpool fyrir síðustu leiktíð. Hann kom inn á í seinni hálfleik og þurfti hann að heyra hávært baul frá stuðningsmönnum Espanyol, stuðningsmönnunum sem höfðu dáð hann og dýrkað áður fyrr.
"Ég átti þrjú mjög góð ár hjá Espanyol, en auðvitað vilja stuðningsmennirnir að leikmennirnir verði áfram hjá félagi þeirra og verða ekki ánægðir þegar þeir fara. Nú spila ég hins vegar með Liverpool. Ég er mjög ánægður hér og stuðningsmennirnir styðja við mig, það er mikilvægasti hluturinn." bætti Riera við.
Riera lék fjörtíu leiki með Liverpool á sinni fyrstu leiktíð hjá félaginu og skoraði hann fimm mörk, flest öll þeirra stórglæsileg. Hann er reglulegur byrjunarliðsmaður hjá spænska landsliðinu þessa dagana og mun hann líklega koma enn sterkari inn í komandi tímabil.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

