L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
02.08.2009 07:08
|
Heimir Eyvindarson
Alberto Aquilani á leið til Liverpool?
Ítalskir fjölmiðlar halda því fram að Liverpool ætli sér að gera tilboð í miðvallarleikmanninn Alberto Aquilani, fari svo að Xabi Alonso fari til Real Madrid.
Aquilani, sem leikur með Roma á Ítalíu, er 25 ára gamall og hefur leikið 11 landsleiki fyrir Ítalíu. Hann hefur átt í miklum meiðslavandræðum á undanförnum árum og er þessa dagana einmitt að ná sér eftir enn ein erfiðu meiðslin.
Fregnir af þessum hugsanlegu vistaskiptum Aquilani hafa skotið upp kollinum af og til í sumar en hafa jafnharðan verið bornar til baka. Nú telja Ítölsk slúðurblöð hinsvegar að málin séu komin á skrið og Liverpool hafi boðið miðvallarleikmanninum snjalla 5 ára samning.
Daniele De Rossi, sem leikur við hlið Aquilani í landsliðinu og hjá Roma, tjáði sig um mögulegt brotthvarf félaga síns í gær. ,,Ég veit ekki hversu langt þessi mál eru komin en ég veit að ef Aquilani fer frá Roma þá missum við frábæran leikmann. Svo mikið er víst."
,,Hann hefur kannski gleymst dálítið vegna allra meiðslavandræðanna, en ég veit að ef hann fer þá munum við finna verulega fyrir því. Hann er frábær knattspyrnumaður og þar fyrir utan ólst hann upp hjá Roma og elskar félagið meira en nokkuð annað."
,,Ég vona auðvitað að hann fari ekki frá okkur en maður veit aldrei. Þetta gæti verið góður kostur fyrir hann. Það er auðvitað mjög freistandi að leika við hlið besta miðvallarleikmanns í heimi - Steven Gerrard."
Aquilani skrifaði nýverið undir samning við Roma sem gildir til 2013, en félagið á í talsverðum fjárhagskröggum og gæti vel þurft að losa sig við einhverja leikmenn. Hver veit nema það verði til þess að Alberto Aquilani klæðist Liverpool treyjunni á næstu dögum.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir