| HI
Bakvörðurinn Álvaro Arbeloa segir að félagaskipti hans yfir til Real Madrid verði hugsanlega kláruð síðar í þessari viku. Arbeloa hefur verið orðaður við Real Madrid í allt sumar, sérstaklega eftir að kaupin á Glen Johnson gengu í gegn. Talað er um að 4,5 milljónir punda fáist fyrir Spánverjann.
"Eins og er er ég einbeittur að því að spila með Liverpool en það er rétt að samningurinn um félagaskiptin er nánast frágenginn," sagði Arbeloa við spænska blaðið Marca. "Eins og ég skil málið virðist allt ganga vel og lítið sem er eftir óleyst. Þetta gæti klárast í þessari viku."
Arbeloa var keyptur til Liverpool frá Deportivo í janúar 2007 og hefur leikið næstum 100 leiki með félaginu. Hann hefur áður verið á mála hjá Real Madrid - hann lék með unglingaliði félagsins þegar Rafael Benítez sá um það.
TIL BAKA
Arbeloa segist á leið til Real
Bakvörðurinn Álvaro Arbeloa segir að félagaskipti hans yfir til Real Madrid verði hugsanlega kláruð síðar í þessari viku. Arbeloa hefur verið orðaður við Real Madrid í allt sumar, sérstaklega eftir að kaupin á Glen Johnson gengu í gegn. Talað er um að 4,5 milljónir punda fáist fyrir Spánverjann."Eins og er er ég einbeittur að því að spila með Liverpool en það er rétt að samningurinn um félagaskiptin er nánast frágenginn," sagði Arbeloa við spænska blaðið Marca. "Eins og ég skil málið virðist allt ganga vel og lítið sem er eftir óleyst. Þetta gæti klárast í þessari viku."
Arbeloa var keyptur til Liverpool frá Deportivo í janúar 2007 og hefur leikið næstum 100 leiki með félaginu. Hann hefur áður verið á mála hjá Real Madrid - hann lék með unglingaliði félagsins þegar Rafael Benítez sá um það.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

