L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
26.07.2009 22:07
|
HI
Spyrjið Alonso um framtíðina
Rafael Benítez sagði eftir leikinn gegn landsliði Singapore í dag að Alonso sjálfur verði nú að svara spurningum um framtíð sína hjá félaginu.
Alonso lék í fimmtán mínútur í leiknum í morgun. Benítez var spurður eftir leikinn hvort þetta væri hugsanlega síðasti leikur hans með Liverpool. "Þetta er spurning sem þú verður að spyrja hann. Við höfum rætt þetta í tvo mánuði en ég held að þetta sé spurning fyrir hann, ekki okkur. Hann á þrjú ár eftir af samningi sínum og við vitum að hann er frábær leikmaður - þess vegna keyptum við hann og endurnýjuðum samninginn við hann. Svo að þú verður að spyrja hann."
Stuðningsmenn Liverpool sem voru á vellinum hvöttu hins vegar Xabi til að vera um kyrrt. "Ég sagði honum að hlusta á stuðningsmennina. Þeir dýrka Xabi. Ég sagði við hann að kannski yrði hann að vera kyrr. Allir liðsfélagar hans vilja að hann verði áfram. Ef ég held Xabi verð ég mjög ánægður."
Daily Mail segir að allar líkur séu á að Real Madrid og Liverpool komist að samkomulagi síðar í vikunni um kaupin á Alonso, og að kaupverðið verði nær 30 milljónum punda en þeim 35 milljónum sem áður var rætt um.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Sjá leikskýrslu
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir