L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
14.07.2009 21:07
|
Heimir Eyvindarson
Fowler: Ég hefði aldrei getað gert þetta.
Robbie Fowler óskar fyrrum liðsfélaga sínum Michael Owen til hamingju með að vera kominn til Manchester United, en tekur skýrt fram að hann hefði aldrei getað hugsað sér að ganga til liðs við þessu höfuðandstæðinga Liverpool liðsins.
,,Að sjáfsögðu óska ég Michael góðs gengis, en ég get bara alls ekki sagt það sama um Manchester United," hefur Liverpool Echo eftir Fowler í dag.
,,Þetta er mjög undarleg staða sem er komin upp og ég vil ekki blanda mér inn í þessar umræður um hollustu og annað slíkt sem hafa verið í gangi að undanförnu. Ég held að það þurfi heldur ekkert að ræða það frekar, það vita allir hvar mitt hjarta slær."
Ég vona bara að fólk hætti nú að agnúast út í þessa ákvörðun Michaels, þetta er búið og gert. Hann tók þessa ákvörðun og hefur eflaust haft sínar ástæður fyrir því. Nú verður hann bara að lifa með henni. Hann er stór strákur."
,,Michael er frábær markaskorari og ég vona auðvitað að honum gangi vel og hann skori mörk, en ég vona samt að Fernando Torres skori fleiri. Það er líka allt í lagi að Michael skori svolítið af mörkum, svo framarlega sem United fær fleiri mörk á sig!"
Af Fowler er það annars að frétta að hann hefur átt í erfiðum meiðslum síðustu 3 mánuðina, en vonast til að spila sinn fyrsta leik fyrir ástralska liðið North Queensland Fury á morgun.
,,Síðustu mánuðir hafa verið hræðilegir, ég hef ekki getað snert bolta, en ég vonast til að vera nú loksins orðinn góður af meiðslunum. Ég hlakka mjög til að spila á morgun, það er kominn tími til", segir þessi ástsæla Liverpool hetja að lokum.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir