| Ólafur Haukur Tómasson
Liverpool hefur haft gott samband við ungverska liðið MTK frá Búdapest undanfarin ár og gerðu félögin tvö samning sín á milli sem snýst fyrst og fremst um það að Liverpool geti fylgst með og fengið unga leikmenn úr þeirra röðum, Liverpool hefur nú þegar fengið fjóra slíka til félagsins, það eru þeir Peter Gulacsi, Zsolt Poloskei, Andras Simon og hinn bráðefnilegi Krisztian Nemeth.
Nú er von á fimm öðrum Ungverjum á æfingar hjá Liverpool á næstu dögum. Þeir sem munu vera á reynsludvöl hjá félaginu eru markvörðurinn Attila Abu, miðjumennirnir Krisztian Adorjan og Patrik Vass, framherjinn Peter Horvath og varnarmaðurinn Patrik Poor, sem vonandi lifir ekki undir eftirnafni sínu, en allir þessir leikmenn eru í unglingaliði MTK.
Útsendarar Liverpool hafa fylgst með þessum fimm leikmönnum og hefur þeim nú verið boðið á æfingar hjá félaginu svo þjálfararnir geti skoðað þá. Umboðsmaður þeirra Tibor Pataky greindi frá því að Adorjan og Vass hafa áður verið boðaðir til æfinga hjá Liverpool.
"Útsendarar Liverpool hafa mætt og fylgst með öllum þeirra í allavega þrjú skipti og það sem meira er þá mætti yfirmaður Akademíu Liverpool, Frank McParland, til Ungverjalands og leit á leikmennina. Hann bauð fimm leikmönnum til Liverpool. Krisztian Adorjan og Patrik Vass eru að fara til Liverpool í annað skiptið, fyrir einu og hálfu ári síðan æfðu þeir með unglingaliðinu og spiluðu leik í Englandi." sagði umboðsmaðurinn Pataky.
Svo virðist sem að mikill efniviður sé í herbúðum MTK en þeir fjórir leikmenn sem Liverpool hafa fengið til sín eru allt hörku leikmenn sem hafa staðið sig með prýði með varaliðinu og eru tveir þeirra nú á æfingum með aðalliðinu sem undirbýr sig fyrir komandi átök, það eru þeir Peter Gulacsi og Krisztian Nemeth, sem margir hafa mikla trú á og þykir líklegt að hann fái einhver tækifæri í komandi leikjum. Á myndinni má sjá Nemeth fagna einu af fjölmörgum mörkum sínum með varaliðinu.
TIL BAKA
Fimm Ungverjar á reynslu
Liverpool hefur haft gott samband við ungverska liðið MTK frá Búdapest undanfarin ár og gerðu félögin tvö samning sín á milli sem snýst fyrst og fremst um það að Liverpool geti fylgst með og fengið unga leikmenn úr þeirra röðum, Liverpool hefur nú þegar fengið fjóra slíka til félagsins, það eru þeir Peter Gulacsi, Zsolt Poloskei, Andras Simon og hinn bráðefnilegi Krisztian Nemeth.Nú er von á fimm öðrum Ungverjum á æfingar hjá Liverpool á næstu dögum. Þeir sem munu vera á reynsludvöl hjá félaginu eru markvörðurinn Attila Abu, miðjumennirnir Krisztian Adorjan og Patrik Vass, framherjinn Peter Horvath og varnarmaðurinn Patrik Poor, sem vonandi lifir ekki undir eftirnafni sínu, en allir þessir leikmenn eru í unglingaliði MTK.
Útsendarar Liverpool hafa fylgst með þessum fimm leikmönnum og hefur þeim nú verið boðið á æfingar hjá félaginu svo þjálfararnir geti skoðað þá. Umboðsmaður þeirra Tibor Pataky greindi frá því að Adorjan og Vass hafa áður verið boðaðir til æfinga hjá Liverpool.
"Útsendarar Liverpool hafa mætt og fylgst með öllum þeirra í allavega þrjú skipti og það sem meira er þá mætti yfirmaður Akademíu Liverpool, Frank McParland, til Ungverjalands og leit á leikmennina. Hann bauð fimm leikmönnum til Liverpool. Krisztian Adorjan og Patrik Vass eru að fara til Liverpool í annað skiptið, fyrir einu og hálfu ári síðan æfðu þeir með unglingaliðinu og spiluðu leik í Englandi." sagði umboðsmaðurinn Pataky.
Svo virðist sem að mikill efniviður sé í herbúðum MTK en þeir fjórir leikmenn sem Liverpool hafa fengið til sín eru allt hörku leikmenn sem hafa staðið sig með prýði með varaliðinu og eru tveir þeirra nú á æfingum með aðalliðinu sem undirbýr sig fyrir komandi átök, það eru þeir Peter Gulacsi og Krisztian Nemeth, sem margir hafa mikla trú á og þykir líklegt að hann fái einhver tækifæri í komandi leikjum. Á myndinni má sjá Nemeth fagna einu af fjölmörgum mörkum sínum með varaliðinu.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

