L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
10.07.2009 08:07
|
Grétar Magnússon
Jermaine Pennant til Zaragoza
Jermaine Pennant hefur gengið til liðs við spænska liðið Real Zaragoza. Pennant varð samningslaus í sumar og var það löngu ljóst að hann myndi ekki semja að nýju við Liverpool.
Hann var lánaður til Portsmouth í janúar og spilaði nokkra leiki með suðurstrandarliðinu. Þeir höfðu hinsvegar ekki áhuga á því að bjóða honum samning.
Pennant stóðst læknisskoðun í gærkvöldi og mun hann reyna að hjálpa liðinu að halda sæti sínu í spænsku Úrvalsdeildinni en liðið kom upp úr næst efstu deild í vor.
Pennant sagði þetta eftir vistaskiptin: ,,Ég vildi fara til Spánar og ég var með tilboð frá nokkrum öðrum félögum í Evrópu en ég ákvað að ganga til liðs við Real Zaragoza. Ég hlakka til að byrja og gera vel í deildinni."
Jermaine Pennant
lék 81 leik með Liverpool og skoraði þrjú mörk. Hann varð Skjaldarhafi með Liverpool 2006 þegar Liverpool vann Chelsea 2:1 í Cardiff.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2010/2011
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld