| Ólafur Haukur Tómasson
Danski varnarmaðurinn Daniel Agger samþykkti nýjan samning við Liverpool fyrr í sumar þrátt fyrir að hafa eingöngu leikið í 26 leikjum á síðustu leiktíð. Hann segist gera sér fulla grein fyrir því að hann þurfi að vera upp á sitt besta á næstu leiktíð til að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliðinu en á síðustu leiktíð mynduðu þeir Jamie Carragher og Martin Skrtel eitt allra ógnvænlegasta miðvarðapar deildarinnar.
Skrtel var fenginn til liðs við Liverpool í kjölfar þess að Agger hafði verið mikið meiddur yfir tímabilið 2007-2008 og náði Skrtel að vinna sér inn fast sæti í varnarlínu liðsins og hefur Agger átt erfitt með að slá hann út úr liðinu enda hefur hann varla misstigið sig.
Þrátt fyrir baráttuna á milli þeirra tveggja þegar kemur að lausu sæti í byrjunarliðinu þá segist Agger vera mikill aðdáandi Skrtel og segist honum hafa brugðið þegar hann sá hversu góður hann var þegar hann var keyptur til Liverpool úr rússnesku úrvalsdeildinni fyrir tæpu einu og hálfu ári síðan.
"Martin er frábær, frábær leikmaður. Það kom mér á óvart hversu góður hann var þegar hann kom. Ég verð að vera hreinskilinn og viðurkenna að ég veit ekki mikið um rússnesku úrvalsdeildina svo ég vissi ekki við hverju var að búast þegar hann kom til félagsins.
Hann er hins vegar mjög góður leikmaður og ekki síður góður til að hafa í klefanum. Hann er góður náungi sem er gott að tala við utan vallar og ég hef mikið dálæti á því hvernig hann spilar innan vallar. Ef þú ert alltaf spilandi og færð tækifæri á að spila í hverri viku þá hlýturðu að vera góður leikmaður.
Það skiptir mig ekki máli ef ég og Martin erum mótherjar þegar kemur að því að berjast um byrjunarliðsstöðu, hann er vinur minn og ég mun halda áfram að segja heiminum frá því hvað ég met hann mikils. Hann er frábær varnarmaður og mun bara verða betri og betri.
Við berjumst báðir við hvort annan til að fá að spila en það er ekki rígur á milli okkar. Við spilum báðir og æfum eftir okkar bestu getu og svo er það undir stjóranum komið að taka ákvörðunina."
Margir stuðningsmenn Liverpool óttuðust að Agger myndi leita á önnur mið í sumar en samningur hans hefði átt að renna út eftir næsta tímabil og hefði Liverpool þá þurft að selja hann í sumar til að missa hann ekki frítt frá sér því líklegt þótti að hann myndi vilja fara til annars liðs og fá meiri spilatíma. Það varð hins vegar ekki og ákvað hann að framlengja samning sinn við Liverpool og gætu stuðningsmenn Liverpool fengið að njóta þess að sjá miðvarðarpar framtíðarinnar hjá liðinu innihalda Skrtel og Agger eftir að Jamie Carragher leggur skóna á hilluna.
TIL BAKA
Agger dáir Skrtel
Danski varnarmaðurinn Daniel Agger samþykkti nýjan samning við Liverpool fyrr í sumar þrátt fyrir að hafa eingöngu leikið í 26 leikjum á síðustu leiktíð. Hann segist gera sér fulla grein fyrir því að hann þurfi að vera upp á sitt besta á næstu leiktíð til að vinna sér inn fast sæti í byrjunarliðinu en á síðustu leiktíð mynduðu þeir Jamie Carragher og Martin Skrtel eitt allra ógnvænlegasta miðvarðapar deildarinnar.Skrtel var fenginn til liðs við Liverpool í kjölfar þess að Agger hafði verið mikið meiddur yfir tímabilið 2007-2008 og náði Skrtel að vinna sér inn fast sæti í varnarlínu liðsins og hefur Agger átt erfitt með að slá hann út úr liðinu enda hefur hann varla misstigið sig.
Þrátt fyrir baráttuna á milli þeirra tveggja þegar kemur að lausu sæti í byrjunarliðinu þá segist Agger vera mikill aðdáandi Skrtel og segist honum hafa brugðið þegar hann sá hversu góður hann var þegar hann var keyptur til Liverpool úr rússnesku úrvalsdeildinni fyrir tæpu einu og hálfu ári síðan.
"Martin er frábær, frábær leikmaður. Það kom mér á óvart hversu góður hann var þegar hann kom. Ég verð að vera hreinskilinn og viðurkenna að ég veit ekki mikið um rússnesku úrvalsdeildina svo ég vissi ekki við hverju var að búast þegar hann kom til félagsins.
Hann er hins vegar mjög góður leikmaður og ekki síður góður til að hafa í klefanum. Hann er góður náungi sem er gott að tala við utan vallar og ég hef mikið dálæti á því hvernig hann spilar innan vallar. Ef þú ert alltaf spilandi og færð tækifæri á að spila í hverri viku þá hlýturðu að vera góður leikmaður.
Það skiptir mig ekki máli ef ég og Martin erum mótherjar þegar kemur að því að berjast um byrjunarliðsstöðu, hann er vinur minn og ég mun halda áfram að segja heiminum frá því hvað ég met hann mikils. Hann er frábær varnarmaður og mun bara verða betri og betri.
Við berjumst báðir við hvort annan til að fá að spila en það er ekki rígur á milli okkar. Við spilum báðir og æfum eftir okkar bestu getu og svo er það undir stjóranum komið að taka ákvörðunina."
Margir stuðningsmenn Liverpool óttuðust að Agger myndi leita á önnur mið í sumar en samningur hans hefði átt að renna út eftir næsta tímabil og hefði Liverpool þá þurft að selja hann í sumar til að missa hann ekki frítt frá sér því líklegt þótti að hann myndi vilja fara til annars liðs og fá meiri spilatíma. Það varð hins vegar ekki og ákvað hann að framlengja samning sinn við Liverpool og gætu stuðningsmenn Liverpool fengið að njóta þess að sjá miðvarðarpar framtíðarinnar hjá liðinu innihalda Skrtel og Agger eftir að Jamie Carragher leggur skóna á hilluna.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

