| Sf. Gutt

Af Álfukeppninni

Seinni undanúrsalitaleikur Álfukeppninnar fór fram í kvöld. Ameríkuþjóð mætir Ameríkuþjóð í úrslitunum því Brasilímenn unnu Suður Afríku 1:0 og mæta Bandaríkjamönnum í úrslitaleiknum á sunnudaginn. Brasilíumenn fá því tækifæri til að verja Álfutitil sinn. 

Leikurinn var tilþrifalítill. Heimamenn gáfu Brasilíumönnum ekkert eftir og fá færi sköpuðust. Allt stefndi í markalust jafntefli þegar Daniel Alves, sem var nýkominn inn á sem varamaður, skoraði eina mark leiksins beint úr aukaspyrnu. Þá voru aðeins tvær mínútur eftir af leiknum. Má segja að Brasilíumenn hafi sloppið vel með að ná sigri.   
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan