L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
29.06.2009 08:06
|
Sf. Gutt
John Barnes ráðinn til Tranmere Rovers
John Barnes var á dögunum ráðinn framkvæmdastjóri Tranmere Rovers. Hann hefur lengi haft áhuga á að stýra ensku félagsliði og nú hefur honum loks gefist kostur á því.
John var ráðinn stjóri Celtic sumarið 1999 en honum var vikið úr starfi þar í febrúar árið eftir. John hefur ekkert fengist við þjálfun síðan utan hvað hann stýrði landsliði Jamaíka frá því seint á síðasta ári og þangað til núna í sumar. Hann fékk sig lausan undan samningi frá landsliðinu þegar hann fékk tilboðið frá Tranmere.
Helsti aðstoðarmaður John Barnes verður Jason McAteer sem lék á sínum tíma með John hjá Liverpool. Jason lék sjálfur í þrjú ár með Tranmere og lauk keppnisferli sínum þar.
John Barnes
lék 407 leiki með Liverpool og skoraði 108 mörk á árunum 1987 til 1997.
Jason McAteer
spilaði 139 leiki með Liverpool og skoraði sex sinnum.
Eins og alllir stuðningsmenn Liverpool ættu að vita þá er Tranmere Rovers staðsett í Liverpool. Félagið er hinu megin við ána Mersey í borgarhluta sem heitir Birkenhead. John hefur búið þeim megin árinnar þannig að það verður stutt í vinnuna hjá honum.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir