| Ólafur Haukur Tómasson

Jamie vill að Liverpool kaupi

Félagaskipti leikmanna virðast vera komin á skrið og er Liverpool nú þegar búið að ganga frá kaupunum á enska landsliðmanninum Glen Johnson. Varafyrirliði Liverpool, Jamie Carragher, segist vona að þekktir leikmenn komi til Anfield fremur en að lykilmenn muni yfirgefa félagið.

Magrir af allra bestu leikmönnum Liverpool hafa gjarnan verið orðaðir við för til annara liða fyrir háar upphæðir og eru spænsku risarnir í Barcelona og Real Madrid að fylgjast gramt með nokkrum leikmönnum félagsins. Þar ber helst að nefna miðjumennina Javier Mascherano, Xabi Alonso og bakvörðinn Alvaro Arbeloa.

Félagið hefur hins vegar greint frá því að það hafi í hyggju að kaup en ekki sölur séu aðalmarkmiðið í sumar þar sem Rafael Benítez reynir að styrkja liðið nægilega mikið til að landa loksins Englandsmeistaratitlinum langþráða.

Jamie segir að mikilvægt sé að staðið sé við bakið á knattspyrnustjóranum þegar hann vinnur að því að koma liðinu upp um eitt sæti í deildinni og gera betur en annað sætið eins og liðið endaði í á síðustu leiktíð.

"Ég er alveg eins og hver annar stuðningsmaður ég verð spenntur fyrir því hvern við gætum fengið í liðið. Leikmennirnir eru nákvæmlega eins og fólkið á götunni því maður tekur upp blöðin og vonast til að maður geti séð að félagið hafi keypt einhvern.

Í sumar hefur hins vegar verið meira um vangaveltur varðandi okkar leikmenn á útleið svo í augnablikinu vonast ég til að það muni ekki gerast, frekar að leikmenn komi inn. Við höfum frábært lið þessa stundina og ég er viss um að knattspyrnustjórinn muni fá nokkra nýja leikmenn í hópinn en ég vil ekki missa einn einasta af þeim sem fyrir eru."

Eins og áður segir þá virðast vangaveltur um framtíð Xabi Alonso vera að tröllríða fjölmiðlum enda er hann sagður ofarlega á óskalista Real Madrid sem hefur oft spurst fyrir um kappann. Jamie vonast til þess að þessar fregnir séu langt frá því að vera sannar.

"Hann og Stevie Gerrard voru líklega tveir bestu leikmennirnir okkar á síðustu leiktíð. Ég veit að Stevie var valinn leikmaður tímabilsins en ef stuðningsmenn eru spurnir hver þeim fannst bestur þá gætu þeir nefnt Alonso sem bestan svo hann er einhver sem við viljum alls ekki missa."

Jamie telur einnig að brottför Cristiano Ronaldo leikmanns Manchester United til Real Madrid í dýrustu félagsskiptum allra tíma gæti gert það að verkum að önnur lið gætu nálgast meistarana á næsta tímabili. Hann segir þó að þeir muni enn hafa mjög sterkan hóp sem er til alls líklegur á næstu leiktíð.

"Hann er frábær leikmaður og ég held að hans muni vera saknað úr Úrvalsdeildinni. Hann gerir gæfumun fyrir Manchester United og þeir hafa marga frábæra leikmenn og hann er einn þeirra. Ég er hins vegar alveg viss um að Sir Alex Ferguson veit hvað hann er að gera."

Greinilegt er að það eru ekki bara stuðningsmenn Liverpool sem að fylgjast gramt með fréttum af mögulegum leikmannakaupum heldur virðast leikmennirnir líka vera mjög spenntir.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan