| Heimir Eyvindarson
Hinn ungi búlgarski markvörður, Nikolay Mihaylov, er með búlgörsku mafíuna á hælunum og fer ekki út úr húsi nema í fylgd þriggja vopnaðra lífvarða!
Mihaylov, sem var lanaður til hollenska félagsins Twente á síðasta tímabili lenti í sérkennilegum útistöðum við mafíuforingja í heimalandi sínu á dögunum.
Havaríið byrjaði þegar mafíósinn Georgi "The Head" Stoilov fór að vera með fyrrum kærustu Mihaylovs, fyrirsætunni Nikoleta Lozanova. Mihaylov lét hafa eftir sér óheppileg ummæli í búlgörskum fjölmiðlum um parið þar sem hann fór fremur ófögrum orðum um fyrrum kærustu sína.
Orðrétt á Mihaylov að hafa sagt að hún væri eins og gamall Austur-þýskur Trabant, samanborið við núverandi kærustu sína sem væri eins og skínandi Ferrari!
Það er greinilega ekki ráðlegt að grínast með svona hluti þegar búlgarska mafían er annars vegar því daginn eftir kom Mihaylov að sportbílnum sínum, sem einmitt er af Ferrari gerð, í frumeindum! Talið er næsta víst að Stoilov fjölskyldan standi á bak við skemmdarverkið.
Samkvæmt fréttum frá Búlgaríu er Mihaylov nú í felum, meðan forráðamenn Liverpool og búlgarska lögreglan taka ákvörðun um hvort honum sé vært í Búlgaríu eða hvort hann verði kallaður til Liverpool þar sem hann ætti að geta verið í friði fyrir mafíósum.
Þessi tvítugi markvörður hefur ekki enn leikið með aðalliði Liverpool, síðan hann gekk til liðs við félagið frá Levski Sofia fyrir tveimur árum en hann lætur greinilega hraustlega að sér kveða á öðrum vígstöðvum.
TIL BAKA
Nikolay Mihaylov með mafíuna á hælunum!
Hinn ungi búlgarski markvörður, Nikolay Mihaylov, er með búlgörsku mafíuna á hælunum og fer ekki út úr húsi nema í fylgd þriggja vopnaðra lífvarða! Mihaylov, sem var lanaður til hollenska félagsins Twente á síðasta tímabili lenti í sérkennilegum útistöðum við mafíuforingja í heimalandi sínu á dögunum.
Havaríið byrjaði þegar mafíósinn Georgi "The Head" Stoilov fór að vera með fyrrum kærustu Mihaylovs, fyrirsætunni Nikoleta Lozanova. Mihaylov lét hafa eftir sér óheppileg ummæli í búlgörskum fjölmiðlum um parið þar sem hann fór fremur ófögrum orðum um fyrrum kærustu sína.
Orðrétt á Mihaylov að hafa sagt að hún væri eins og gamall Austur-þýskur Trabant, samanborið við núverandi kærustu sína sem væri eins og skínandi Ferrari!
Það er greinilega ekki ráðlegt að grínast með svona hluti þegar búlgarska mafían er annars vegar því daginn eftir kom Mihaylov að sportbílnum sínum, sem einmitt er af Ferrari gerð, í frumeindum! Talið er næsta víst að Stoilov fjölskyldan standi á bak við skemmdarverkið.
Samkvæmt fréttum frá Búlgaríu er Mihaylov nú í felum, meðan forráðamenn Liverpool og búlgarska lögreglan taka ákvörðun um hvort honum sé vært í Búlgaríu eða hvort hann verði kallaður til Liverpool þar sem hann ætti að geta verið í friði fyrir mafíósum.
Þessi tvítugi markvörður hefur ekki enn leikið með aðalliði Liverpool, síðan hann gekk til liðs við félagið frá Levski Sofia fyrir tveimur árum en hann lætur greinilega hraustlega að sér kveða á öðrum vígstöðvum.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

