| Grétar Magnússon

Benítez um Johnson

Rafa Benítez segir að hann hafi borgað meira fyrir hægri bakvörðinn Glen Johnson en hann vildi en talið er að kaupverðið sé um 17 milljónir punda.  Benítez segist þó ekki vera hættur í leikmannakaupum í sumar.

Chelsea buðu einnig í Johnson á síðustu stundu og var það tilboð samþykkt en Johnson var búinn að gefa það út að hann myndi helst af öllu vilja fara til Liverpool.  Benítez hafði þetta að segja um málið:  ,,Stundum þarf maður að borga aðeins meira.  Það er ekki hægt að keppa á meðal bestu liða í ensku Úrvalsdeildinni án þess að eyða peningum.  Við vorum að leita að gæða leikmanni og helst einhverjum breskum vegna nýrra reglna í Meistaradeildinni.  Glen Johnson smellpassaði því við það sem við vorum að leita að."

Johnson mun líklega skrifa undir samning við félagið innan næstu 48 klukkustunda og hann verður líklega ekki eina nýja andlitið á Anfield í sumar.

,,Við erum með áætlun," sagði Benítez.  ,,Við getum keypt annan leikmann ef við þurfum þess, en aðrir leikmenn þurfa ekki að yfirgefa félagið til þess að svo verði."

Mikið hefur verið rætt og ritað um þá Javier Mascherano og Xabi Alonso og hafa báðir verið orðaðir við brottför til Spánar.  Real Madrid hafa þá opinberlega lýst því yfir að þeir muni ekki eltast meira við Xabi Alonso en Barcelona hafa sýnt Mascherano mikinn áhuga.  Benítez ítrekar að hann vilji ekki selja þessa leikmenn.  En sá sem helst hefur verið talað um að muni yfirgefa félagið er Alvaro Arbeloa, nú þegar Glen Johnson hefur verið keyptur.

,,Alvaro Arbeloa átti mjög gott tímabil en hann á eitt ár eftir af samningi sínum," sagði Benítez.  ,,Ef hann skrifar undir nýjan samning þá er það gott vegna þess að við höfum þá samkeppni um stöður en ef gott tilboð kemur í hann þá munum við íhuga það."

Benítez vonast einnig eftir því að geta selt þá Sebastian Leto og Andriy Voronin til að hafa meira fé á milli handanna, einnig er ekki ólíklegt að Andrea Dossena fari aftur til Ítalíu.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan