L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
22.06.2009 14:06
|
Grétar Magnússon
Liverpool kaupir ungling frá Rushden & Diamonds
Liverpool hafa fest kaup á 16 ára gömlum leikmanni, Aaron King, frá Rushden & Diamonds en liðið leikur í ensku utandeildinni.
King gekk til liðs við Rushden þegar hann var 11 ára og snemma var ljóst að hann væri mikið efni. Hann fékk svo tækifæri hjá Liverpool þegar hann fór til félagsins á reynslu og leist þjálfurunum það vel á strákinn að hann var keyptur.
Paul Driver sem er yfirmaður unglingamála hjá Rushden & Diamonds hafði þetta að segja: ,,Við erum öll hæstánægð fyrir hönd Aaron - þetta er ótrúlega skemmtilegt fyrir alla sem tengjast unglingamálum félagsins þessi fimm ár sem hann hefur verið hjá okkur."
,,Framför hans hjá okkur þar sem hann er orðinn nógu góður til að eitt af fjórum bestu liðunum á Englandi sýnir hvað okkur hefur tekist að gera hjá þessu félagi. Þetta sýnir að okkur hefur tekist að gera vel þrátt fyrir að hafa þurft að sætta okkur við minni fjárframlög frá knattspyrnuyfirvöldum hér á landi síðastliðinn tvö ár."
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2010/2011
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld