Forsíða

Frétt

21.06.2009 21:06 | Sf. Gutt

Af Álfukeppninni

Keppni í B riðli Álfukeppninnar lauk í kvöld. Andrea Dossena fékk loks tækifæri í heimsmeistaraliðinu en hann var í byrjunarliði Ítala gegn Suður Ameríkumeisturum Brasilíu. Þetta reyndist fyrsti og síðasti leikur hans í keppninni og hann er nú kominn í sumarfrí. Ítalir voru í þröngri stöðu því tap þýddi að þeir urðu að treysta á hægstæð úrslit í hinum leiknum.

Leikurinn var tíðindalítill framan af en undir lok fyrri hálfleiks gerðu Brasilíumenn út um málið. Luis Fabiano skoraði fyrsta markið á 37. mínútu eftir að hafa fengið sendingu inn á teiginn. Hann skoraði svo aftur þremur mínútum seinna af stuttu færi eftir laglega sókn. Á lokamínútu hálfleiksins ruddust Brasilíumenn fram í skyndisókn. Robinho fékk boltann úti á vinstri kanti og hugðist senda fyrir á óvaldaðan félaga sinn. Andrea Dossena sá hvað verða vildi og renndi sér á boltann en ekki tókst betur til en hann skoraði sjálfsmark. Ekki gott en líklega hefði Brasilíumaðurinn fyrir aftan hann skorað ef hann hefði ekki náð boltanum. Ítölum tókst ekki að skora í síðari hálfleik en Andrea var ekki fjarri því á síðustu mínútunni en þrumuskot hans fór yfir.

Ítalir urðu nú að treysta á hagstæð úrslit í leik Bandaríkjamanna og Egypta. Svo fór að Bandaríkjamenn unnu óvæntan sigur 3:0 og þessi eini sigur þeirra á mótinu hingað til kom þeim áfram! Charlie Davies, Michael Bradley og Clint Dempsey skoruðu mörkin sem dugðu til að koma Bandaríkjamönnum í undanúrslit. Ítalir hefðu komist áfram ef skot Andrea Dossena hefði farið í markið í lok hins leiksins!

Brasilía fékk níu stig í riðlinum en hin þrjú liðin fengu þrjú stig hvert.

Undanúrslit fara fram á miðvikudag og fimmtudag. Í fyrri leiknum mætast Bandaríkjamenn og Spánverjar en í þeim seinni Brasilíumenn og Suður Afríka. 

 

Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • EJS
  • Ölgerðin