L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
20.06.2009 23:06
|
Sf. Gutt
Af Álfukeppninni
Keppni í A riðli Álfukeppninnar lauk í kvöld. Evrópumeistarar Spánverja héldu sigurgöngu sinni áfram og settu heimsmet!!!
Spánverjar unnu gestgjafa Suður Afríku 2:0. Spánverjar voru alltaf sterkari aðilinn og Albert Riera átti þrumuskot úr aukaspyrnu, í fyrri hálfleik, sem markmaður Suður Afríku varði vel. Hann varði svo vel frá Fernando Torres.
David Villa skoraði fyrsta mark leiksins á 52. mínútu eftir sendingu frá Albert. David, leikmaður Valencia, hafði mínútu áður misnotað víti sem var varið. Varamaðurinn Fernando Llorente innsiglaði sigurinn á 72. mínútu þegar hann skoraði af stuttu færi eftir horn.
Fjórir leikmenn Liverpool hófu leikinn. Jose Reina fékk að standa í markinu í þetta skiptið og Fernando Torres var í sókninni. Þeir Albert Riera og Alvaro Arbeloa léku á vinstri kantinum. Alvaro var bakvörður. Fernando fór af velli eftir klukkutíma. Albert var skipt af velli undir lokin. Xabi Alonso hvíldi á bekknum.
Í hinum leik riðilsins skildu Nýja Sjáland og Írak jöfn án marka. Þessi úrslit þýddu að Suður Afríka komst í undanúrslit með Spánverjum. Spánn fékk níu stig, Suður Afríka fjögur, Írak tvö og Nýja Sjáland eitt.
Sigur Spánverja var sá fimmtándi sem liðið vinnur í röð og er það nýtt og glæsilegt heimsmet! Um leið jöfnuðu Spánverjar annað heimsmet en þessi landsleikur var sá 35. sem liðið leikur í röð án taps. Brasilía átti metið en Spánverjar geta nú slegið það í næsta leik. Þetta frábæra spænska lið hefur verið algerlega óstöðvandi frá því á síðasta sumri þegar liðið varð Evrópumeistari.
Síðustu mánuði hefur Liverpool átt að jafnaði fimm leikmenn í spænska landsliðshópnum og hafa önnur félög ekki átt fleiri leikmenn í hópnum!
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2010/2011
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld