L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
28.05.2009 09:05
|
Grétar Magnússon
Brottför Sami gæti verið tækifæri fyrir yngri leikmenn
Rafa Benítez segir að brottför Sami Hyppia frá félaginu gæti þýtt fleiri tækifæri fyrir unga og efnilega varnarmenn. Þar eru helst þeir Martin Kelly og Mikel San Jose nefndir til sögunnar.
Benítez neitar því hinsvegar ekki að hann muni kaupa varnarmann í sumar, en hann segist ætla að hafa nokkra unga varnarmenn í hópnum á undirbúningstímabilinu.
,,Við munum skoða ungu leikmennina á undirbúningstímabilinu og við getum unnið í mismunandi aðstæðum," sagði Benítez í viðtali við opinbera heimasíðu félagsins. ,,Við munum skoða þá alla og ákveða svo hvað verður. Þetta eru allt ungir leikmenn með frábæra framtíð hér."
,,Við sjáum hvað gerist - þetta undir þeim komið og líka undir því hvort við finnum einhvern leikmann sem er góður fyrir okkur á réttu verði"
Martin Kelly spilaði allan leikinn í gærkvöldi þegar Englendingar unnu Bosníu-Hersegóvínu í undankeppni Evrópumóts U-19 ára landsliða. Kelly þótti standa sig vel í leiknum. Hann fékk tækifæri með aðalliðinu á tímabilinu í Meistaradeildinni gegn PSV í Hollandi og svo var hann lánaður til Huddersfield þar sem hann stóð sig mjög vel.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir