L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
20.05.2009 12:05
|
Sf. Gutt
Christopher Buchtmann Evrópumeistari
Ungliðinn Christopher Buchtmann varð, á mánudaginn, Evrópumeistari með undir 17 ára landsliði Þjóðverja. Þjóðverjar unnu Hollendinga 2:1 í úrslitaleik eftir framlengingu. Christopher var í liði Þjóðverja og lagði upp fyrra mark þeirra. Hann þótti leika lykilhlutverk hjá þýska liðinu í keppninni og lagði meðal annars upp þrjú mörk þegar þýskir burstuðu Englendinga 4:0. Hann skoraði eitt mark í keppninni þegar Þjóðverjar unnu Tyrki 3:1.
Eftir mótið sendi Knattspyrnusamband Evrópu frá sér lista yfir efnilegustu leikmenn mótins. Christopher Buchtmann var einn þeirra sem komust á þennan lista. Það verður gaman að sjá hvað úr þessum piltum verðu. Listinn er hér að neðan.
Patrick ter Mate (Hollandi) - Vitesse/AGOVV Academy Cutodian
Janick Kamber (Sviss) - FC Basel 1893
Marc Muniesa (Spáni) - FC Barcelona
Dennis Appiah (Frakklandi) - AS Monaco
Marco Fossati (Ítalíu) - FC Internazionale
Deniz Herber (Tyrklandi) - FC St. Pauli
Christopher Buchtmann (Þýskalandi) - Liverpool
Jack Wilshere (Englandi) - Arsenal
Lennart Thy (Þýskalandi) - Werder Bremen
Luc Castaignos (Hollandi) - Feyenoord
Christopher Buchtmann kom síðasta sumar til Liverpool frá Borussia Dortmund. Hann leikur venjulega sem vinstri bakvörður eða á vinstri kanti. Hann hefur spilað vel með ungligaliði Liverpool sem leikur til úrslita í Unglingabikarkeppninni á komandi dögum.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2010/2011
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld