| Sf. Gutt
John Barnes var síðasti leikmaður Liverpool til að vera kjörinn Knattspyrnumaður árins. Hann varð fyrir valinu árið 1990. Hann segir að Steven Gerrard verðskuldi þennan heiður í ár.
"Steven Gerrard verðskuldar fyllilega að hafa verið kosinn Knattspyrnumaður ársins af Samtökum íþróttafréttamanna. Ég var síðasti leikmaður Liverpool til að vinna þessi verðlaun árið 1990 og biðin eftir að einhver annar hjá gamla félaginu mínu myndi vinna þau var orðin nokkuð löng."
"Þeir sem vinna þessi verðlaun spila oftast með liðum sem vinna deildina. Það segir því sína sögu um hversu Steven hefur spilað vel á leiktíðinni að hann skuli hafa orðið fyrir valinu. Þetta er líka staðfesting á því hversu vel félagar hans í Liverpool hafa staðið sig. Það er langt um liðið frá því gamla félagið mitt hefur komist svona nærri því að vinna titilinn og þessi viðurkenning er eitt af merkjum þess að liðið er farið að nálgast að gera það."
"Liverpool hefur bætt sig geigvænlega mikið í deildinni á þessari leiktíð og Steven hefur átt stóran þátt í þeirri bætingu. Hann á því skildar hamingjuóskir því framganga hans hefur verið þess eðlis að hún á viðurkenningu skilda. Steven spilar fyrir liðið og er leiðtogi, í þess orðs fyllstu merkingu, með öllum mörkunum sínum og þeirri óeigingjörnu vinnu sem hann leggur á sig fyrir liðið. Hann hefur leikið stórt hlutverk í endurreisn Liverpool og hann mun drífa liðið áfram á næsta keppnistímabili þegar gamla liðið mitt heldur áfram að draga á Manchester United."
TIL BAKA
Verðskuldaður heiður!
John Barnes var síðasti leikmaður Liverpool til að vera kjörinn Knattspyrnumaður árins. Hann varð fyrir valinu árið 1990. Hann segir að Steven Gerrard verðskuldi þennan heiður í ár. "Steven Gerrard verðskuldar fyllilega að hafa verið kosinn Knattspyrnumaður ársins af Samtökum íþróttafréttamanna. Ég var síðasti leikmaður Liverpool til að vinna þessi verðlaun árið 1990 og biðin eftir að einhver annar hjá gamla félaginu mínu myndi vinna þau var orðin nokkuð löng."
"Þeir sem vinna þessi verðlaun spila oftast með liðum sem vinna deildina. Það segir því sína sögu um hversu Steven hefur spilað vel á leiktíðinni að hann skuli hafa orðið fyrir valinu. Þetta er líka staðfesting á því hversu vel félagar hans í Liverpool hafa staðið sig. Það er langt um liðið frá því gamla félagið mitt hefur komist svona nærri því að vinna titilinn og þessi viðurkenning er eitt af merkjum þess að liðið er farið að nálgast að gera það."
"Liverpool hefur bætt sig geigvænlega mikið í deildinni á þessari leiktíð og Steven hefur átt stóran þátt í þeirri bætingu. Hann á því skildar hamingjuóskir því framganga hans hefur verið þess eðlis að hún á viðurkenningu skilda. Steven spilar fyrir liðið og er leiðtogi, í þess orðs fyllstu merkingu, með öllum mörkunum sínum og þeirri óeigingjörnu vinnu sem hann leggur á sig fyrir liðið. Hann hefur leikið stórt hlutverk í endurreisn Liverpool og hann mun drífa liðið áfram á næsta keppnistímabili þegar gamla liðið mitt heldur áfram að draga á Manchester United."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

