| Sf. Gutt

Gerard Houllier hælir David Ngog

Gerard Houllier, sem nú starfar fyrir Franska knattspyrnusambandið, hefur trú á David Ngog geti látið almennilega að sér kveða hjá Liverpool.

Liverpool keypti David frá Paris St Germain fyrir einu ári. David lék 19 leiki á síðasta keppnistímabili og skoraði þrjú mörk. 

Gerard, sem var framkvæmdastjóri Liverpool frá 1998 til 2004, telur að hinn ungi landi hans eigi eftir að taka miklum framförum hjá gamla félaginu hans.
 
"Hann er mjög ungur ennþá. Gallinn er sá að okkur hættir til að sýna ungum leikmönnum óþolinmæði. Það þarf að bíða og gefa þeim tíma."

"Hann er þó hjá frábæru félagi þar sem hann mun læra mikið. Þeir sem æfa og spila með leikmönnum í heimsklassa taka auðvitað framförum."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan