| Sf. Gutt

Lauri minnir á Michael Owen!

Margir stuðningsmenn Liverpool vilja ekki heyra minnst á Michael Owen en nú er kominn fram ungur piltur sem er líkt við Michael!

Þetta er finnski strákurinn Lauri Dalla Valle sem vakti mikla athygli með ungligaliði Liverpool á síðasta keppnistímabili. Hann skoraði 19 mörk í 26 leikjum og mörgum finnst hann minna mikið á Michael Owen.

Hugh McAuley, sem hefur þjálfað ungliða Liverpool árum saman, segir margt líkt með þeim Lauri og Michael. Hann ætti að vita eitthvað um málið því hann var þjálfari hjá Liverpool þegar Michael kom fram á sjónarsviðið. En hvað segir Hugh um finnska strákinn? 

"Hann er markaskorari eins og Michael. Hann er fljótur að bregðast við og reynir að ná öllum sendingum. Hann er líka alltaf að lauma sér inn í vítateiginn til að valda usla í vörn andstæðinga sinna. Hann er gríðarlega fljótur og vel vakandi þegar hann er kominn inn í vítateiginn. Hann á margt sammerkt með Michael. Báðir eru þeir markaskorarar og honum finnst ekkert skemmtilegra en að skora. Hann er einfaldlega mjög efnilegur."

Vonandi verður Lauri jafn magnaður og Michael því fæddir markaskorarar finnast ekki á hverju strái!



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan